Ákæra kínverskan njósnara Samúel Karl Ólason skrifar 11. október 2018 10:24 Frá blaðamannafundi í gær þar sem ákærurnar voru tilkynntar. Herb Stapleton frá FBI er hér að tala og við hlið hans er Benjamin C. Glassman frá Dómsmálaráðuneytinu. AP/John Minchillo
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur ákært kínverskan mann fyrir njósnir. Hann er meðal annars sakaður um að hafa reynt að stela iðnaðar- og ríkisleyndarmálum af flugvélaframleiðendum í Bandaríkjunum. Maðurinn, sem heitir Xu Yanjun, var plataður af útsendurum Alríkislögreglu Bandaríkjanna til að ferðast til Belgíu, þar sem hann var handtekinn og framseldur til Bandaríkjanna. FBI segir ákæruna til marks um það að yfirvöld í Kína stundi með beinum hætti efnahagslegar njósnir í Bandaríkjunum. Yfirvöld Bandaríkjanna hafa gagnrýnt Kína harðlega fyrir njósnir sem þessar. Þá segja sérfræðingar, samkvæmt Reuters, að málið sé enn ein vísbending um aukna hörku í viðskiptadeilum ríkjanna tveggja. Að undanförnu hafi litið út fyrir að Kínverjar hafi varið auknu púðri í efnahagslegar njósnir í Bandaríkjunum.Njósnir Xu munu hafa snúist að stórum fyrirtækjum sem vinna fyrir yfirvöld Bandaríkjanna á ýmsum sviðum eins og í varnarmálum, netöryggi, hernaðarframleiðslu og framleiðslu dróna. Hann er sakaður um að hafa stundað njósnir gegn fyrirtækjunum frá því í desember 2013. Síðan þá er Xu sagður hafa fengið sérfræðinga fyrirtækjanna til að starfa fyrir sig og til að ferðast til Kína. Lu Kang, talsmaður utanríkisráðuneytis Kína, segir ásakanirnar gegn Xu vera tilbúning.
Bandaríkin Belgía Kína Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira