Lík bresks auðmanns og eiginkonu hans fundust í Taílandi Atli Ísleifsson skrifar 25. september 2018 12:35 Lögreglumaður í Taílandi. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Lík breska auðmannsins Alan Hogg og eiginkonu hans Nod Suddaen fundust í morgun niðurgrafin á lóð í norðurhluta Taílands. Um vika er síðan að lögregla á svæðinu lýsti því yfir að líkur væri á að þau hafi orðið fórnarlömb leigumorðingja. Lík þeirra Hogg og Suddaen, sem bæði voru 64 ára, fundust á niðurgrafin á lóð sinni í Phrae-héraði. Í frétt BBC er haft eftir lögreglu að Hogg hafi verið skotinn til bana, en Suddaen barin til bana með hamri. Tilkynnt var um hvarf þeirra í síðustu viku. Þrír eru í haldi lögreglu vegna málsins, sakaðir um að hafa framkvæmt morðið að beiðni bróður Suddaen. Sá er einnig í haldi. Lögreglustjórinn Manas Kerdsukho segir ástæður morðanna vera langvinnar fjölskyldudeilur um fjármuni og eignir. Mennirnir sem grunaðir eru um verknaðinn voru handteknir eftir að lögregla rakti slóð farartækis sem hafði verið á lóð fórnarlambanna til þeirra. Þeir viðurkenndu síðar að hafa banað þeim Hogg og Suddaen. Hogg kom upprunalega frá Edinborg í Skotlandi og auðgaðist þegar hann rak fatahreinsunarkeðjuna Clayfull. Hann flutti til Taílands fyrir nokkrum árum þar sem hann hafði látið reisa þriggja hæða glæsihýsi ásamt konu sinni.
Taíland Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Þjóð á krossgötum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira