Oddvitaáskorunin: Leggja áherslu á íbúalýðræði Samúel Karl Ólason skrifar 16. maí 2018 13:00 Daði Bergþórsson og aðrir á lista Framsóknarflokksins og óháðra í Sandgerði/Garði.
Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2018 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum. Daði Bergþórsson leiðir lista Framsóknarflokksins og óháðra í sameiginlegu sveitarfélagi Sandgerðis og Garðs í sveitarstjórnarkosningunum. Daði Bergþórsson leiðir B-lista Framsóknar og óháðra í sameiginlegu sveitarfélagi Sandgerðis og Garðs. Hann er 42 ára Sandgerðingur og hefur starfað sem deildarstjóri hjá Airport Associates á Keflavíkurflugvelli í 20 ár. Daði hefur starfað sem bæjarfulltrúi Framsóknar í Sandgerði frá 2010. Hann er giftur Kristínu Jónsdóttur og þau eiga þrjá stráka.Hverjar eru helstu áherslur Framsóknar og óháðra? „Við leggjum áherslu á að íbúalýðræði verði aukið, þ.e. að íbúar taki þátt í stórum sem smáum ákvörðunum í gegnum íbúakosningar. Það þarf að leggja aukna áherslu á málefni eldri borgara, t.a.m. þarf að auka fjölbreytni í tómstundum eldri borgara og við sjáum fyrir okkur að dagsdvöl verði að veruleika,” segir Daði með áherslu en leikskóla- og skólamál eru honum einnig hjartans mál. „Við þurfum að fara strax í uppbyggingu á leikskólunum og ungbarnaleikskóla og gefa foreldrum þannig kost á að fara út á vinnumarkaðinn strax eftir fæðingarorlof. Ný sveitarstjórn þarf svo að vanda sig í vinnu á nýju aðalskipulagi fyrir nýja sveitarfélagið okkar,“ segir Daði og bætir við að til að hægt sé að fara í þessi verkefni þá þurfi fyrst og fremst að ástunda faglega stjórnsýslu. „Auknar tekjur sveitarfélagsins þurfa að skila sér til íbúa sveitarfélagsins og mikilvægt er að halda áfram markvissri niðurgreiðslu skulda.”Eitthvað að lokum? „Ég vona auðvitað að íbúar hafi trúi á stefnumálum Framsóknar og óháðra og veiti okkur umboð sitt í kosningunum til að gera þau að veruleika. Það eru næg verkefni fram undan og við treystum okkur til að vinna vel með góðu fólki.” Áfram X-B!Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi? Þakgil við Vík í Mýrdag er sennilega flottasti staðurinn, samt er alltaf best að komast í sumarbústaðinn í Hveragerði.Hvar á Íslandi myndir þú helst vilja búa? (Fyrir utan eigið sveitarfélag) Í Garðinum (nýtt sveitarfélag verður ekki til fyrr en 10.júní).Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Kjötbollur sem konan gerir.Hvaða mat ert þú bestu/ur að elda? Ég verð að viðkenna að ég elda lítið, en ég er nokkuð góður í að ganga frá.Uppáhalds „guilty pleasure“ lag? Þau eru nokkur, Simply Red kemur ofarlega í huga.Hvað er það vandræðalegasta sem komið hefur fyrir þig, sem segja má frá? Ég man nú reyndar ekki eftir neinu í augnablikinu, en það er nú sennilega bara af því ég vill ekki segja frá því.Draumaferðalagið? Ætli það sé ekki ferð til Balí eða eitthvað í þá áttina. Væri samt sáttastur að komast í fjölskylduferð til Tenerife eða Orlando.Trúir þú á líf eftir dauðann? Nei.Besti hrekkurinn sem þú hefur gert eða lent í? Það myndu ekki margir kjósa mig ef ég segði frá því.Hundar eða kettir? Hvorugt, en frekar hundar.Uppáhalds „guilty pleasure“ bíómynd? Allar Rocky myndirnar.Er eitthvað smávægilegt sem farið hefur í taugarnar á þér í þínu sveitarfélagi sem þú vilt laga?Núverandi meirihluti, þau eru samt alveg ágæt.Á að banna flugelda? Nei, en það má samt fækka þeim.Hvaða landsliðsmaður í knattspyrnu værir þú og af hverju? Það er greinilegt að Aron Einar tók mína hæfileika á næsta level.Oddvitaáskorunin er hluti af kosningaumfjöllun Vísis. Öllum oddvitum á landinu býðst að taka þátt. Áhugasamir oddvitar geta verið í sambandi við samuel@stod2.is.
Kosningar 2018 Oddvitaáskorunin Mest lesið Stjörnulífið: Kossaflens og Inga Lind ástfangin á Spáni Lífið Fékk hjartaáfall og missti 50 kíló Lífið Ástfangnar í fjörutíu ár Lífið Giftu sig við persónulega athöfn í sólinni Lífið Fimmtíu ára ljósmyndaveisla á sýningu GVA Menning Illuminati varð táknmynd ótta við ósýnileg öfl Lífið Loksins, loksins unnu skáldin kvalara sína! Lífið Sumarið er komið á Boozt Lífið samstarf Harry Potter stjarna tveggja barna faðir Lífið „Þetta er saga um sambandsslit tveggja vinkvenna“ Lífið Fleiri fréttir Harry Potter stjarna tveggja barna faðir Giftu sig við persónulega athöfn í sólinni Ástfangnar í fjörutíu ár Illuminati varð táknmynd ótta við ósýnileg öfl Infocapital Íslandsmeistari eftir æsispennandi keppni Stjörnulífið: Kossaflens og Inga Lind ástfangin á Spáni Fékk hjartaáfall og missti 50 kíló Loksins, loksins unnu skáldin kvalara sína! Veittu verðlaun fyrir dónalegasta orðið á Íslandsmeistaramóti í skrafli Þórhildur og Hjalti eiga von á barni Jiggly Caliente dragdrottning látin „Prófið að plokka og sjáið árangurinn“ Björn plokkar í stað Höllu „Þetta er saga um sambandsslit tveggja vinkvenna“ Krakkatían: Pokémon, spænska og hjólreiðakeppni Halla og Biden hittust í útför páfans Á erfitt með að muna nöfnin á börnum vina sinna Fréttatía vikunnar: Frans páfi, Kaffi kjós og tónleikar Hildur Vala og Mikael Kaaber í aðalhlutverkum Moulin Rouge Vonast til að fá fullkomna sundlaug í Reykjadal Raf- og danstónlistarveisla í Austurbæjarbíó Ekkert sundfataatriði í Ungfrú Ísland unglinga Sérfræðingar deila um typpi refilsins en Sigríður Hagalín er búin að telja Ein glæsilegasta kona landsins á lausu Glæsihús á Seltjarnarnesi á 240 milljónir Fór í tvær lýtaaðgerðir á sama deginum Á eiginmann og kærasta og allir sáttir Öskurdrottningin Lar Park Lincoln er látin Sautján langveik börn fengu ferðastyrk Syngja Húsavík á Húsavík með stúlknakórnum Sjá meira