Cleveland í úrslit eftir sóp en Philadelphia hélt sér á lífi Anton Ingi Leifsson skrifar 8. maí 2018 07:30 LeBron fagnar í nótt. vísir/getty
Cleveland er komið í úrslitaleik austurdeildarinnar eftir að liðið sópaði Toronto úr keppni í nótt með 128-93 sigri í fjórða leik liðanna. Cleveland byrjaði betur og var með fjögurra stiga forskot eftir fyrsta leikhlutann, 30-26. Þeir gáfu enn frekar í eftir hann og unnu næsta leikhluta með tólf stigum og staðan 63-47 í hálfleik. Þá var leik nánast lokið en leikmenn Cleveland voru fjarri því að vera hættir. Liðið steig enn frekar á bensíngjöfina og vann leikhluta þrjú og fjögur samanlagt með nítjáns stigum og lokatölur 35 stiga sigur, 128-93. LeBron James átti enn einn frábæra leikinn fyrir Cleveland. Hann skoraði 29 stig, tók átta fráköst og gaf ellefu stoðsendingar. Hjá Toronto var Jonas Valanciunas stigahæstur með átján stig. Cleveland er því komið í úrslit austurdeildarinnar þar sem liðið mætir annað hvort Philadelphia eða Boston en Philadelphia hélt sér á floti í nótt með sigri í fjórða leik liðanna. Staðan þar er 3-1. Leikurinn var í járnum. Staðan í hálfleik var 47-43 Philadelpiu í vil og þeir náðu góðum kafla í fjórða leikhluta og leiddu eftir hann. Þeir unnu svo að lokum með elllefu stigum, 103-92. Jayson Tatum skoraði 20 stig fyrir Boston en í liði Philadelphia var stigahæstur Dario Saric með 25 stig auk þess að taka átta fráköst.
Fótbolti NBA Mest lesið „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Fótbolti Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Fótbolti Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Fótbolti Böl Börsunga í Belgíu Fótbolti Uppgjörið: KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Körfubolti „Leyfðum þremur leikmönnum að ganga frá okkur“ Sport Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Enski boltinn Magdeburg skoraði 45 en lærisveinar Guðjóns Vals úr leik Handbolti Nik fær Lindu Líf til Kristianstad Fótbolti Valskonur niðurlægðu Íslandsmeistarana Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Valskonur niðurlægðu Íslandsmeistarana Tryggvi með flest fráköst í Evrópusigri Sjaldgæf 30-20-10 þrenna í Síkinu í gær Sömu félög að spila í tveimur íþróttum í sama húsinu á sama tíma Kristófer Acox kallar sig glæpamann Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Stjarnan með þægilegan sigur á nýliðunum Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Íslandsmeistararnir mæta bikarmeisturunum Skagamenn senda Kanann heim Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Ólíkar niðurstöður hjá landsliðsmönnunum Er Tóti Túrbó ofmetinn? „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum „Bara feginn að við fundum þó leið“ Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum Sjá meira