Ruiz mun bera vitni í máli Guðmundar Spartakusar gegn Atla Má Jakob Bjarnar skrifar 18. apríl 2018 09:00 Í stefnunni á hendur Atla Má er því haldið fram að hann hafi án sannana sett fram tilhæfulaus ummæli á hendur Guðmundi Spartakusi þar sem hann er án sannana sakaður um hroðalegustu glæpi. Vísir
Hin umstefndu ummæli eru; „ósönn, óviðurkvæmileg, tilhæfulaus og smekklaus og til þess fallin að sverta stefnanda,“ segir í stefnu Guðmundar Spartakusar Ómarssonar á hendur Atla Má Gylfasyni blaðamanni með meiru. Auk Atla Más er Reyni Traustasyni stefnt sem forsvarsmanni útgáfufélags Stundarinnar. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður Guðmundar Spartakusar fer fram á 10 milljónir í miskabætur vegna tilhæfulauss fréttaflutnings á hendur Guðmundi Spartakusi, með vöxtum. Auk þess er farið fram á að hinir stefndu standi skil á málskostnaði. Þá er farið fram á ómerkingu á „ærumeiðandi ummælum og greiðslu miskabóta vegna ítrekaðra ærumeiðinga og brota á friðhelgi einkalífs stefnanda, í fréttum sem birtar voru í fjölmiðlum meðstefnda Stundarinnar, í útvarpsþættinum Harmageddon og í viðtali í hljóði og mynd á Facebook og www.sudurnes.net, dagana 1. 2. og 30. desember 2016,“ eins og segir í stefnu. Alls er um 30 ummæli að ræða. Candido Figueredo Ruiz mun bera vitni Málið, sem hefur verið fyrirferðarmikið í fjölmiðlum og snýr að meintum fíkniefnaumsvifum Guðmundar Spartakusar og hvarfi Friðriks Kristjánssonar, verður tekið fyrir 3. maí næstkomandi. Paragvæski blaðamaðurinn Candido Figueredo Ruiz, sem fjallað hefur um eiturlyfjaviðskipti og spillingu í Paragvæ, mun meðal annarra bera vitni í málinu. Ekki liggur fyrir hvort Ruiz er á leið til landsins, en hann er verðlaunaður blaðamaður sem hefur mátt búa við það, vegna umfjöllunar sinnar, að vera með lífverði við hvert fótmál. Eins og meðal annars kemur fram kemur í þessari umfjöllun Vice. Úr umfjöllun Vice um Ruiz en umfjöllun hans um spillingu og eiturlyfjaviðskipti í Paragvæ hefur leitt til þess að honum hafa verið sýnd banatilræði. Jóhann Hlíðar Harðarson, fréttamaður RÚV, byggði þá umfjöllun sem Ríkisútvarpið samdi sig frá málaferlum með skaðabótagreiðslum til Guðmundar Spartakusar, meðal annars á fréttum og viðtölum við Ruiz. Ekki vitað hvort Ruiz sé á leið til landsins Gunnar Ingi Jóhannsson hæstaréttarlögmaður, verjandi Atla Más í málinu, segir í samtali við Vísi að af sinni hálfu hafi ekki staðið annað til en að taka af honum símaskýrslu í málinu. En, lögmaður Guðmundar Spartakusar hafi krafist þess að Ruiz komi til landsins. Gunnar Ingi segist þá líta svo á að eðlilegt sé að stefnandi í málinu beri þann kostnað sem því fylgir að fljúga honum til landsins en ekki hafi komið nein viðbrögð fram við því. Ekki enn. Vísir hefur reynt að setja sig í samband við Candido Figueredo Ruiz með það fyrir augum að inna hann eftir því hvort hann sé að búa sig til Íslandsfarar, en án árangurs. Meðal annars væri forvitnilegt að vita hvort hann verður í fylgd lífvarða komi til þess að honum verði flogið til landsins. Ásakanir um svívirðileg hegningarlagabrot Stefnan á hendur Atla Má er ítarleg en í lið sem heitir Málsástæður og lagarök, ómerkingarkrafa, segir meðal annars að skipta megi hinum umstefndu ummælum í þrennt eftir efni þeirra ásakana sem þau innihalda: Jóhann Hlíðar byggði umfjöllun sína á RÚV að miklu leyti á skrifum Ruiz auk þess sem hann var í beinu sambandi við paragvæska blaðamanninn. Ríkisútvarpið samdi sig frá málaferlum. „Í fyrsta lagi er stefnanda gefið að sök að hafa gerst sekur um svívirðilegt manndráp. Í öðru lagi er stefnandi ásakaður um það að villa á sér heimildir og nota til þess falsað vegbréfi sem er skjalafals samkvæmt íslenskum lögum. Í þriðja lagi þá er stefnanda gefið að sök að vera stórtækur eiturlyfjasmyglari.“ Guðmundur Spartakus byggir stefnu sína á því að í téðum ummælum felist ásökun um að hann hafi gerst sekur um alvarleg hegningarlagabrot „sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum. Öll ummælin fela í sér ásökun um refsiverða háttsemi og eru til þess fallin að meiða æru stefnanda. Að gefnu tilefni er rétt að taka það fram að stefnandi er ekki með sakarferil eins og sjá má á framlögðu sakavottorði og er ekki til rannsóknar hjá lögreglu.“ Hroðalegt mál sem undir er Meðal þeirra atriða sem eru tíunduð eru þau að Guðmundi Spartakusi sé „gefið að sök að hafa sýnt afskorið höfuð Friðriks á Skype og líkur þannig leiddar að því að stefnandi hafi fyrirkomið Friðriki. Með ummælunum er stefnanda gefin að sök refsiverð og siðferðislega ámælisverð háttsemi sem varðar við 211. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en svívirðilegri glæp en manndráp er erfitt að hugsa sér.“ Vilhjálmur H. Vilhjálmsson flytur málið fyrir hönd Guðmundar Spartakusar. Stefna hans er ítarleg en alls er farið fram á ómerkingu 30 atriða í fréttaflutningi og máli Atla Más.visir/gva Í þessu er vísað til Stundarinnar, 1. desember 2016 (bls. 1, 20-25). Í stefnunni er talið óyggjandi að það sé Guðmundur Spartakus sem sé bendlaður við hroðalegt morð á Friðrik Kristjánssyni og nefnt að Atli Már Gylfason hafi fylgt umfjöllun sinni eftir í viðtölum þar sem hann auglýsti umfjöllun sína og Stundina. Rakin eru dæmi um það í stefnunni. Ekki verjandi sem vill kalla Ruiz til landsins Vísir ræddi sérstaklega við lögmann Atla Más, um þessa stefnu. En, Atli Már hefur greint frá því sjálfur, á Facebooksíðu sinni, að Blaðamannafélag Íslands standi straum af málskostnaði hans. Gunnar Ingi segist hafa boðað að Candido Figueredo Ruiz, hinn paragvæski blaðamaður, myndi bera vitni. Og að hann myndi reyna að taka af honum skýrslu í gegnum síma, en heimild er fyrir slíku sé vitni statt fjarri þingstað. „Sem á við um hann. Einhvern tölvupóst sá ég um að stefnandi vildi helst fá hann fyrir dóminn. Þá er sjálfsagt að hann kaupi fyrir hann flugfar. Ekki stendur til annað en taka af honum símaskýrslu.“ Gunnar Ingi segist ekki sjá hina knýjandi nauðsyn þess að Ruiz mæti í réttarsal. „Ekki frekar en stefnandi. Ég veit ekki hvar hann er niðurkominn í heiminum en hann hefur höfðað mál á færibandi en það hefur enginn séð hann í mörg ár,“ segir Gunnar Ingi um Guðmund Spartakus. Ekki nema þá lögmaður hans? „Já, við verðum að gera ráð fyrir því.“ Umfjöllunin byggir á erlendum fréttum En, hvers vegna metur þú það svo að nauðsynlegt sé að Ruiz beri vitni? Sigmundur Ernir var sýknaður í máli Guðmundar Spartakusar á hendur honum. Því máli var áfrýjað og verður tekið fyrir í Hæstarétti Íslands 30. þessa mánaðar. Dóms er að vænta þann sama dag og málflutningur í máli Atla Más fer fram.visir/anton brink „Án þess að ég vilji fara djúpt ofan í það, fyrir flutning málsins, þá er það okkar mat að það geti verið gagnlegt að hann staðfesti, að hann sé heimildarmaður og/eða hafi skrifað um þessi mál Guðmundar Spartakusar og hvernig hann tengist inní þennan fíkniefnaheim sem hann er sagður gera, þá í þessari erlendu umfjöllun. Það sem hefur verið skrifað um hann hérna heima á Íslandi er haft eftir erlendum fjölmiðlum.“ Gunnar Ingi segir sem sagt að tilgangurinn með því að taka skýrslu af Ruiz sé sá að fá það staðfest fyrir rétti að skrifað hafi verið um þessi mál þarna úti. „Og um leið þá, sýna fram á að þetta er ekki uppspuni í íslenskum fjölmiðlum heldur fá erlenda blaðamanninn til að staðfesta að um þetta hafi verið fjallað þarna úti. Og þá á hvaða heimildum hafi verið byggt þar. En, ég er ekki að kalla eftir honum hingað til lands.“ Mál á hendur Sigmundi Erni á dagskrá 30. apríl Gunnar Ingi bendir á mál sem hann segir hliðstætt, sem er mál Guðmundar Spartakusar á hendur Sigmundi Erni Rúnarssyni fréttastjóra Hringbrautar. En, Sigmundur Ernir var sýknaður í því máli í héraði. Guðmundur Spartakus áfrýjaði því og verður það mál flutt í Hæstarétti 30. apríl í þessum mánuði. Atli Már Gylfason. Tekist er á um hvort hann hafi gengið of langt í umfjöllun sinni um Guðmund Spartakus og hreinlega farið fram með staðlausa stafi.visir/stefán „Það er næsta mál á dagskrá. Þar var sýknað á þeim forsendum að íslenskum fjölmiðlum ætti að vera óhætt að greina frá því sem segir í erlendum fjölmiðlum. Eins og Mannréttindadómsstóll Evrópu hefur ítrekað sagt, verður að fara varlega í að takmarka tjáningarfrelsi blaðamanna í endursögn á fréttum sem þegar hafa verið sagðar. Það var það eina sem gert var á Hringbraut og Hæstiréttur mun hlusta á það á mánudeginum 30. apríl.“ Gunnar Ingi segir að vænta megi dóms í því máli sama dag og mál Guðmundar Spartakusar á hendur Atla Má verður flutt fyrir Héraðsdómi Reykjaness, það er fimmtudaginn 3. maí. „Einu ummælin sem varða Guðmund Spartakus eru nákvæmlega sömu ummælin og héraðsdómi Reykjavíkur og Sigmundur var sýknaður af.“ Þetta þýðir að Gunnar Ingi mun leggja málið upp þannig að umfjöllun Atla Más snúi að meintum ónafngreindum íslenskum morðingja en í stefnunni er talið óyggjandi að ummælin snúi að Guðmundi Spartakusi og engum öðrum. Að standa vörð um tjáningarfrelsi blaðamanna Gunnar Ingi segist meta það sem svo að Mannréttindadómsstóll Evrópu hafi ítrekað staðið vörð um þann rétt blaðamanna, að taka á móti upplýsingum og miðla þeim. Og sé fjallað um íslenska ríkisborgara í erlendum fjölmiðlum, og verið að segja þar að þeir tengist mannshvörfum og fíkniefnainnflutningi, þá sé ekki hægt að banna íslenskum fjölmiðlum að endursegja það. Gunnar Ingi er verjandi Atla Más sem og Sigmundar Ernis. Hann segir að fróðlegt hefði verið að fá Guðmund Spartakus í réttarsalinn, en það er ekki í boði. „Héraðsdómur stóð vaktina og sýknaði af kröfunni, nú er komið að Hæstarétti að leggja mat á þetta.“ En, það eru fleiri ummæli sem eru undir í máli Atla Más? „Það eru einhver sjö eða átta ummæli eru alveg eins, sem varða Guðmund Spartakus. Og, svo eru önnur ummæli sem varða Guðmund Spartakus ekki neitt,“ segir Gunnar Ingi. En, Guðmundur Spartakus krefjist þess samt að eigi við um sig. Gunnar Ingi segir að hann hafi, fyrir hönd umbjóðenda sinna, farið fram á frávísun en Héraðsdómur Reykjaness vilji fá efnisumfjöllun um máli. Vill fá Guðmund Spartakus í réttarsalinn „Ég skil ekki af hverju stefnandi í þessu máli vill ekki koma fyrir dóm,“ segir Gunnar Ingi, en hann segir að Guðmundur Spartakus neiti að bera vitni sjálfur. „Það er búið að skora á hann að koma fyrir dóm og gefa skýrslu, en hann vill ekki verða við því. Og hann vill ekki koma og segja frá því hvernig þetta hefur hitt hann illa fyrir, þessi umfjöllun, að hvaða leyti. Hann hefur ekki gefið neinar skýringar á því,“ segir Gunnar Ingi. Hann segir að upplýsandi gæti reynst að spyrja hann út í þessar ferðir hans þarna erlendis. „Því var lýst yfir af hans lögmanni að hann ræki kalkverksmiðju í Paragvæ; af hverju hann telji að fjölmiðar í Paragvæ séu að bendla hann við ólögmæta starfsemi? Af hverju hann hafi dregist inn í slíka umræðu ef þetta er uppspuni? En, við fáum ekki svör við því,“ segir Gunnar Ingi.
Dómsmál Fjölmiðlar Hvarf Friðriks Kristjánssonar Tengdar fréttir Áfrýjar dómi vegna meintra meiðyrða Sigmundar Ernis Guðmundur Spartakus Ómarsson hefur áfrýjað sýknudómi Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Sigmundi Erni Rúnarssyni fjölmiðlamanni vegna fréttaflutnings af sér á síðasta ári. 7. júlí 2017 11:50 RÚV gert að afhenda samkomulag um fréttaflutning Páll Magnússon formaður allsherjarnefndar krefst viðbragða frá stjórn RÚV og/eða ráðherra. 10. apríl 2018 14:00 Mest lesið Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar Innlent Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Erlent Málið sem Trump getur ekki losað sig við Erlent Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Innlent „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Innlent „Þetta er bara ljótt“ Innlent Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Innlent Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Erlent Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Færir nýársboðið fram á þrettándann Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Kvartar til umboðsmanns og vonar að Vegagerðin sjái að sér Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Gyðingar á Íslandi upplifa aukinn ótta Ferðaþjónusta blómstrar í uppsveitum Árnessýslu „Þetta er bara ljótt“ Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Ætlar að skýra hvenær rjúfa megi þagnarskyldu Þagnarskylda heilbrigðisstarfsfólks og öryggisgæsla við grunnskóla Eyjólfur í orlof og Inga þrefaldur ráðherra Vegagerðin segir flóðin í Vík fyrirséð Fjölmiðlar, bókmenntir og hægrimennska á Sprengisandi „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Leggja hald á skip á alþjóðahafsvæði undan ströndum Venesúela Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Sjá meira
Áfrýjar dómi vegna meintra meiðyrða Sigmundar Ernis Guðmundur Spartakus Ómarsson hefur áfrýjað sýknudómi Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Sigmundi Erni Rúnarssyni fjölmiðlamanni vegna fréttaflutnings af sér á síðasta ári. 7. júlí 2017 11:50
RÚV gert að afhenda samkomulag um fréttaflutning Páll Magnússon formaður allsherjarnefndar krefst viðbragða frá stjórn RÚV og/eða ráðherra. 10. apríl 2018 14:00