Fékk átta ára dóm fyrir aðild að stóra Instagram-kókaínmálinu Kristín Ólafsdóttir skrifar 18. apríl 2018 10:56 Melina Roberge (t.v.) og Isabelle Lagace sáttar með lífið á ferð sinni um heiminn áður en þær voru handteknar með 95 kíló af kókaíni í Ástralíu. Mynd/Instagram
Kanadísk kona á þrítugsaldri, Melina Roberge, hefur verið dæmd fyrir að smygla umtalsverðu magni af kókaíni til Ástralíu með skemmtiferðaskipi árið 2016. Hún hlaut átta ára fangelsisdóm, að því er fram kemur í frétt BBC, en fjallað hefur verið ítarlega um málið á Vísi. Roberge er ein þriggja Kanadamanna sem handteknir voru í aðgerðum lögreglu á sínum tíma. Ein þeirra, hin liðlega þrítuga Isabelle Lagacé, var dæmd fyrir aðild sína að málinu í nóvember síðastliðnum. Hún hlaut sjö og hálfs árs fangelsisdóm og háa fjársekt. Þriðji aðilinn, hinn 64 ára Andre Tamine, hefur enn ekki verið dæmdur fyrir aðild sína.Sjá einnig: Breyta framburði sínum í stóra Instagram-kókaín málinu Dómarinn í málinu, Kate Traill, sagði við réttarhöldin að greinilegt væri að Roberge sæi eftir gjörðum sínum. Hún ávítaði Roberge þó fyrir „grunnhygginn“ lífsstíl sinn og sagði hana hafa látið ginnast af tækifæri til að birta flottar Instagram-myndir. Málið þykir einmitt einna merkilegast fyrir þær sakir að þær Lagacé og Roberge birtu myndir úr fíkniefnaferðinni á Instagram. „Hún sóttist eftir því að vera öfunduð af öðru fólki. Ég efast um að sú sé raunin nú,“ sagði dómarinn um Roberge við réttarhöldin. Um var að ræða 95 kíló af kókaíni, sem þau Roberge, Lagacé og Tamine fluttu til Ástralíu með skemmtiferðaskipinu MS Sea Princess. Verðmæti fíkniefnanna er talið nema um 1,7 milljörðum íslenskra króna og er um að ræða mesta magn sem ástralska lögreglan hefur lagt hald á, á skipi eða bát, í einu og sömu aðgerðinni.
Tengdar fréttir Breyta framburði sínum í stóra Instagram-kókaín málinu Tveir kanadískir ríkisborgarar hafa játað að hafa reynt að smygla umtalsverðu magni kókaíns til Ástralíu með skemmtiferðaskipi árið 2016. 27. febrúar 2018 06:28 Reyndu að smygla 100 kílóum af kókaíni til Ástralíu með skemmtiferðaskipi og birtu myndir úr ferðinni á Instagram Eiga yfir höfði sér lífstíðarfangelsisvist. 30. ágúst 2016 23:50 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Fleiri fréttir Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Sjá meira
Breyta framburði sínum í stóra Instagram-kókaín málinu Tveir kanadískir ríkisborgarar hafa játað að hafa reynt að smygla umtalsverðu magni kókaíns til Ástralíu með skemmtiferðaskipi árið 2016. 27. febrúar 2018 06:28
Reyndu að smygla 100 kílóum af kókaíni til Ástralíu með skemmtiferðaskipi og birtu myndir úr ferðinni á Instagram Eiga yfir höfði sér lífstíðarfangelsisvist. 30. ágúst 2016 23:50