Þungvopnaður maður skaut fjóra til bana vegna heimiliserja Samúel Karl Ólason skrifar 28. janúar 2018 23:39 Fólkið var skotið við bílaþvottastöð í Pennsylvania. Vísir/AFP
Þungvopnaður maður skaut fjóra til bana við bílaþvottastöð í Pennyslvania í Bandaríkjunum í dag. Vitni segja árásina hafa verið gerða vegna heimiliserja en hinn 28 ára gamli Timothy Smith var í sambandi með einu fórnarlambanna. Hann myrti tvo menn og tvær konur á þrítugsaldri. Ein kona sem faldi sig í bíl á meðan skothríðin stóð yfir skarst lítillega á glerbrotum, samkvæmt AP fréttaveitunni.Samkvæmt frétt Guardian var maðurinn klæddur skotheldu vesti og vopnaður þremur byssum. Einum hálfsjálfvirkum riffli að gerðinni AR-15, einnig skammbyssu og annars konar .308 kalíbera riffli.Smith liggur nú á gjörgæslu en ekki liggur fyrir hvort hann hafi beint vopnum sínum að sjálfum sér eða hafi verið skotinn af lögregluþjónum. Ekki er búist við því að hann muni lifa af. Guardian segir þetta vera í 21 sinn á árinu sem fleiri en einn láta lífið í skotárás í Bandaríkjunum það sem af er þessu ári. Þá tengjast skotárásir í Bandaríkjunum iðulega heimiliserjum og heimilisofbeldi. Maðurinn sem myrti 25 í kirkju í Texas í nóvember hafði verið dæmdur fyrir heimilisofbeldi og sótti fjölskylda eiginkonu hans kirkjuna reglulega. Amma eiginkonu hans dó í árásinni. Sömuleiðis hóf árásarmaður skothríð á heimili fyrrverandi eiginkonu sinnar í Texas í september. Hún var þá með gesti og myrti maðurinn hana og sjö gesti hennar áður en hann var skotinn til bana af lögregluþjónum.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Mest lesið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Fleiri fréttir „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Sjá meira