Hamfaragos gæti orðið á Filippseyjum á næstu dögum eða vikum Kjartan Kjartansson skrifar 15. janúar 2018 07:33 Bjarmi af hrauni sem vellur upp úr tindi Mayon sást í gær. Vísir/AFP
Jarðfræðingar á Filippseyjum vara við því að hamfaragos geti orðið í virkasta eldfjalli eyjanna á næstu dögum eða vikum. Mayon-eldfjallið hefur spúið ösku og grjóti undanfarna daga og hafa um níu þúsund íbúar nærliggjandi þorpa flúið heimili sín.Reuters-fréttastofan segir að merki séu um að hraun sé byrjað að vella upp úr eldfjallinu sem er vinsæll ferðamannastaður í Albay-héraði. Viðvörunarstigi sem lýst var yfir hefur verið hækkað. Fólki hefur verið ráðlagt að halda sig í að minnsta kosti sex kílómetra fjarlægð frá eldfjallinu. Mayon er virkasta eldfjall Filippseyja en það hefur gosið fimmtíu sinnum á síðustu fimm hundruð árunum, að því er segir í frétt AP-fréttastofunnar. Um það bil tólf hundruð manns fórust þegar hraun flæddi yfir þorp í gosi þar í febrúar árið 1841. Þúsundir manna þurftu að flýja þegar Mayon gaus síðast árið 2014. Yfirmaður Jarðvísindastofnunar Filippseyja segir að virknin í Mayon nú bendi til þess að hraungos sé í uppsiglingu. Hann vill þó ekki útiloka hættulegra sprengigos.
Mest lesið Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Erlent Telur mikilvægi Viðreisnar aukast ef viðræðum verður hafnað Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Fleiri fréttir Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Sjá meira