Leggja til að Dancila verði nýr forsætisráðherra Atli Ísleifsson skrifar 16. janúar 2018 13:12 Viorica Dancila hefur átt sæti á Evrópuþinginu frá árinu 2009. Vísir/psd
Rúmenski Jafnaðarmannaflokkurinn (PSD) hefur tilnefnt Evrópuþingmanninn Viorica Dancila sem nýjan forsætisráðherra landsins í kjölfar afsagnar Mihai Tudose.Reuters segir frá því að hin 54 ára Dancila sé náinn bandamaður flokksformannsins Liviu Dragnea, en hún hefur átt sæti á Evrópuþinginu frá árinu 2009. Flokkurinn var einhuga í valinu á Dancila sem næsti forsætisráðherra. Fyrr í dag skipaði Klaus Iohannis Rúmeníuforseti Mihai Fifor varnarmálaráðherra forsætisráðherra til bráðabirgða. Flokksráð PSD mun á morgun formlega leggja til við forsetann að Dancila verði tilnefnd sem næsti forsætisráðherra. Samþykki Iohannis tillöguna þarf þingið að kjósa um hana. Greiði meirihluti þings með tillögunni mun Dancila taka svo við forsætisráðherraembættinu.Deilur við flokksformanninn Tudose sagði af sér eftir að þingið samþykkti vantrauststillögu á hendur honum þar sem margir þingmenn PSD greiddu atkvæði með tillögunni. Tudose hafði átt í deilum við Dragnea, en þær stigmögnuðust í síðustu viku þegar Tudose bað innanríkisráðherra landsins, sem er náinn bandamaður Dragnea, um að segja af sér. Dragnea er með sterk ítök í flokknum og ríkisstjórn, þrátt fyrir að hann geti sjálfur ekki gegnt embætti forsætisráðherra eftir að hafa hlotið dóm fyrir kosningasvindl.
Evrópusambandið Tengdar fréttir Forsætisráðherra Rúmeníu segir af sér Mihai Tudose hefur sagt af sér sem forsætisráðherra Rúmeníu eftir að þingmenn úr Jafnaðarmannaflokki landsins neituðu að lýsa yfir stuðningi við hann. 16. janúar 2018 12:09 Fjölmenn mótmæli í Rúmeníu Fólkið mótmælir fyrirhuguðum breytingum á dómskerfi landsins. 27. nóvember 2017 08:27 Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira
Forsætisráðherra Rúmeníu segir af sér Mihai Tudose hefur sagt af sér sem forsætisráðherra Rúmeníu eftir að þingmenn úr Jafnaðarmannaflokki landsins neituðu að lýsa yfir stuðningi við hann. 16. janúar 2018 12:09
Fjölmenn mótmæli í Rúmeníu Fólkið mótmælir fyrirhuguðum breytingum á dómskerfi landsins. 27. nóvember 2017 08:27