Rafleiðni hefur minnkað í Múlakvísl Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 6. janúar 2018 12:41 Rennsli í Múlakvísl jókst í gær og litur árinnar breyttist, en rennslið er svipað og meðalrennsli að sumri. Vísir/friðrik
Rafleiðni í Múlakvísl hefur minnkað í dag, en að öðru leyti hafa litlar breytingar komið fram á mælum Veðurstofu Íslands eftir að rennsli jókst í gær og litur árinnar breyttist. Náttúruvársérfræðingur segir að erfitt sé að segja til um framhaldið. Rennsli í Múlakvísl jókst í gær og litur árinnar breyttist, en rennslið er svipað og meðalrennsli að sumri, segir Hulda Rós Helgadóttir, náttúruvársérfræðingur Veðurstofunnar. „Það virðist vera jarðhitavatn í ánni og í gær þá var vart við aukið rennsli og lykt af ánni og mældist rafleiðnin nokkuð há. Svo mældum við hana aftur í morgun og þá var leiðnin heldur minni en í gær og vatnsmagnið líka,“ segir Hulda Rós. Hún segir jarðskjálftavirkni í Mýrdalsjökli ekki hafa verið mikla í nótt – en virknin hefur verið bundin við miðju öskjunnar og nágrenni eins af sautján sigkötlum jökulsins. „Það komu nokkrir skjálftar seinni partinn í gær, en eftir það hefur það bara verið einn og einn.“ Hulda segir að vindur sé hagstæður og að því sé eldfjallagas ekki að mælast í eins miklum mæli og í gær – en hvetur þó fólk á þessum slóðum til þess að hafa varann á. „Við mældum gas þarna í gær en núna hefur vindurinn aukist þannig að við erum ekki að mæla markverð gildi núna en gæti alltaf verið en mælum það bara ekki.Og framhaldið?„Það er ómögulegt að segja – gæti bara dalað niður aftur,“ segir Hulda Rós Helgadóttir náttúruvársérfræðingur.
Eldgos og jarðhræringar Tengdar fréttir Aukið jarðhitavatn í Múlakvísl Vart hefur orðið við aukið rennsli og breytingu á lit Múlakvíslar á undaförnum dögum. Rennslið er nú svipað og meðalrennsli að sumri. 5. janúar 2018 16:57 Mest lesið Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Fleiri fréttir Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Sjá meira
Aukið jarðhitavatn í Múlakvísl Vart hefur orðið við aukið rennsli og breytingu á lit Múlakvíslar á undaförnum dögum. Rennslið er nú svipað og meðalrennsli að sumri. 5. janúar 2018 16:57