To Kill a Mockingbird tekin af leslista vegna „óþægilegs“ orðalags Kristín Ólafsdóttir skrifar 14. október 2017 23:24 Gregory Peck fór með hlutverk lögfræðingsins Atticusar Finch í kvikmyndinni To Kill a Mockingbird, sem byggð var á samnefndri skáldsögu Harper Lee, árið 1962. Vísir/Getty
Skáldsagan To Kill a Mockingbird eftir Harper Lee, sem af mörgum er talin einn hornsteina bandarískra bókmennta, hefur verið tekin af leslista í grunnskóla í Mississippi-ríki í Bandaríkjunum. Ástæðan er sögð ákveðið orðalag í bókinni sem „lætur fólki líða óþægilega.“ Breska dagblaðið Guardian greinir frá. Bókin var á leslista 8. bekkinga í Biloxi, borg í Misssissippi-ríki, þangað til skólayfirvöld tóku hana þaðan út í vikunni.Sjá einnig: Harper Lee látin „Það var kvartað undan henni. Það er notað ákveðið orðalag í bókinni sem lætur fólki líða óþægilega, og við getum komið sama boðskap til skila með öðrum bókum,“ sagði Kenny Holloway, varaformaður skólaráðs í Biloxi. To Kill a Mockingbird, sem gefin var út árið 1960, fjallar um kynþáttamisrétti í smábæ í Alabama-ríki. Í bókinni er svartur karlmaður ákærður fyrir að hafa nauðgað hvítri konu og aðdragandi réttarhalda yfir honum er rakinn.„N-orðið“ talið aðalástæðan Í tölvupósti, sem svæðisblaðinu Sun Herald barst frá áhyggjufullum lesanda, var notkun á orðinu „negri“, niðrandi orði yfir svart fólk, sögð ástæða þess að bókinni var kippt út af leslistanum á miðri önn. „Nemendurnir fá ekki að klára að lesa To Kill a Mockingbird vegna notkunar á „N-orðinu“,“ sagði í tölvupóstinum en sendandi var ekki hliðhollur ákvörðun skólayfirvalda. Viðkomandi sagði ákvörðunina enn fremur „óhugnanlegt dæmi um ritskoðun.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem To Kill a Mockingbird, sem einnig er skyldulesning í ensku í mörgum framhaldsskólum á Íslandi, er tekin af leslista bandarískra skólakrakka. Hún var fjarlægð af einum slíkum í grunnskólum í Virginíu-ríki í fyrra, að því er segir í frétt Guardian.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Fleiri fréttir Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Sjá meira