Varð fyrir bíl inni í stofu Kristín Ólafsdóttir skrifar 3. september 2017 22:43 Frá vettvangi í York í dag. Mikil mildi þykir að enginn hafi látist í slysinu. Skjáskot/BBC
Fjórir særðust, þar á meðal maður sem sat í sófa inni á heimili sínu, þegar bíl var keyrt í gegnum vegg íbúðarhúss í bresku borginni York í dag, að því er segir í frétt Sky News. Bílnum var keyrt í gegnum vegg hússins snemma á sunnudagsmorgun. Þá kviknaði auk þess í bílnum við áreksturinn. Myndir af atvikinu, þar sem bíllinn sést hálfur inni í húsinu, hafa vakið mikla athygli á vefnum í dag. Fjölskyldan, sem er til heimilis í téðu húsi, var heima við þegar bíllinn hafnaði inni hjá þeim. Fjölskyldufaðirinn sat í sófa inni í húsinu og varð fyrir bílnum en hann hlaut alvarlega áverka á neðri hluta líkamans og var fluttur á sjúkrahús. Eiginkonu mannsins og barni þeirra varð ekki meint af slysinu. Lögreglustjóri á svæðinu sagði ótrúlegt að enginn skyldi hafa týnt lífi í árekstrinum, að því er segir í frétt BBC. Þrír voru inni í bílnum, sem var af gerðinni Volkswagen Golf, og hlutu þeir höfuðáverka við áreksturinn. Ökumaður bílsins, sem talinn er um tvítugt, var handtekinn. Eldur kviknaði jafnframt í bílnum, og barst í innviði hússins, en slökkvilið náði að lokum niðurlögum hans.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Sjá meira