Nær Amanda Nunes að fylgja á eftir sigrinum á Rondu? Pétur Marinó Jónsson skrifar 9. september 2017 22:30 Frá vigtuninni. Vísir/Getty
UFC 215 fer fram í nótt í Edmonton, Kanada, þar sem þær Amanda Nunes og Valentina Shevchenko mætast í aðalbardaga kvöldsins. Upphaflega áttu þeir Demetrious Johnson og Ray Borg að mætast í aðalbardaga kvöldsins en sá síðarnefndi er veikur og getur ekki barist. Bardagaaðdáendur í Kanada hafa verið ansi óheppnir. Á síðustu sjö bardagakvöldum UFC í Kanada hefur aðalbardaginn fallið niður fjórum sinnum. Í nótt hefðum við sennilega séð Demetrious Johnson bæta metið yfir flestar titilvarnir í sögu UFC en Kanadabölvunin greip inn í. Aðalbardaginn sem eftir stendur er þó alls ekki síðri. Þar er einnig belti í húfi en þær Nunes og Shevchenko mætast um bantamvigtartitil kvenna. Upphaflega átti bardaginn að fara fram á UFC 213 í sumar en aðeins nokkrum klukkustundum fyrir bardagann neyddist Nunes til að bakka úr bardaganum. Í aðdraganda UFC 213 hafði Nunes verið að glíma við bólgur í ennisholunum og treysti hún sér því ekki til að keppa. Dana White, forseti UFC, var gríðarlega ósáttur við Nunes og lofaði því að hún myndi aldrei vera aftur í aðalbardaga kvöldsins í UFC. Það loforð stóð ekki lengi. Valentina Shevchenko hefur ítrekað sagt að Nunes hafi bara verið hrædd um að keppa við sig og telur sig sjá veikleikamerki hjá Nunes. Shevchenko segir einnig að Nunes hafi verið að reyna að skera of mikið niður á of skömmum tíma til að vera sem stærst í bardaganum sjálfum. Það má segja að ímynd Nunes hafi beðið hnekki eftir atburðarrásina á UFC 213. Bardagaaðdáendur eru grimmir og miskunnarlausir þegar bardagar falla niður og skiptir þá litlu máli hvort ástæða aflýsingarinnar sé góð eður ei. Nunes var auðvitað á allra vörum þegar hún gjörsigraði Rondu Rousey á 48 sekúndum í lok síðasta ást. Meistarinn Nunes þarf að minna á sig í kvöld með jafn frábærri frammistöðu og þá. Fyrri bardaginnÚr fyrri bardaga þeirra í mars 2016.Vísir/GettyÞetta verður í annað sinn sem þær Nunes og Shevchenko deila búrinu saman. Fyrri bardagi þeirra á UFC 196 í mars 2016 þótti ekkert sérstaklega merkilegur en er mun athyglisverðari nú þegar belti er í húfi. Það var þriggja lotu bardagi og bar Nunes sigur úr býtum eftir dómaraákvörðun. Nunes vann fyrstu tvær loturnar og stjórnaði Shevchenko í gólfinu. Nunes sprengdi sig hins vegar og naut Shevchenko yfirburða í 3. lotunni. Shevchenko hefði sennilega unnið bardagann ef bardaginn hefði verið fimm lotu titilbardagi líkt og nú. Meistarinn Nunes er með 11 sigra í 1. lotu og er þekkt fyrir að vera afar sókndjörf og byrja gríðarlega hratt. Það kemur þó í bakið á henni ef hún nær ekki að klára bardagann en var svo sannarlega ekki vandamál þegar hún kláraði Rondu Rousey. Takist Nunes að verja beltið í nótt verður það hennar önnur titilvörn í UFC. Nunes verður kannski aldrei eins þekkt og Ronda Rousey en ef hún nær að verja beltið og heldur áfram að klára bardaga sína líkt og hún er þekkt fyrir gæti hún orðið stórt nafn. Áhorfendur verða fljótir að gleyma vonbrigðunum sem fylgdi veikindum hennar á UFC 213 ef Nunes berst jafn vel og hún hefur gert að undanförnu. Valentina Shevchenko er afar reynslumikil bardagakona sem fær nú tækifæri á beltinu í fyrsta sinn. Shevchenko tók sinn fyrsta MMA bardaga aðeins 15 ára gömul heima í Kirgistan og var strax orðin 7-0 í MMA þegar hún var aðeins 18 ára gömul. Þá tók hún sér smá hlé frá MMA ferlinum til að einbeita sér að Muay Thai og á hún ófáa sigrana þar. Þess má geta að hún sigraði Joanna Jedrzejczyk, strávigtarmeistara UFC, á sínum tíma í Muay Thai. Þetta eru einfaldlega tvær bestu bardagakonurnar í bantamvigt kvenna og verður áhugavert að sjá hversu mikið hefur breyst frá fyrri viðureign þeirra. Sigur festir Nunes í sessi sem sú besta í bantamvigtinni en Shevchenko gæti orðið sú fjórða í bantamvigtinni til að vinna beltið á tveimur árum. UFC 215 verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í nótt en bein útsending hefst kl 2.
MMA Tengdar fréttir Amanda Nunes kláraði Rondu Rousey auðveldlega UFC 207 fór fram í nótt þar sem Ronda Rousey snéri aftur í búrið eftir 13 mánaða fjarveru. Ronda entist ekki í eina mínútu með meistaranum Amöndu Nunes. 31. desember 2016 07:08 Nunes: Skil ekki hvernig þessar stelpur gátu tapað fyrir Rondu Amanda Nunes, heimsmeistari í bantamvigt, hefur fengið á baukinn fyrir að sýna Rondu Rousey mikla vanvirðingu eftir að hafa lamið hana í harðfisk á 48 sekúndum. 6. janúar 2017 22:45 Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Fleiri fréttir Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sjá meira
Amanda Nunes kláraði Rondu Rousey auðveldlega UFC 207 fór fram í nótt þar sem Ronda Rousey snéri aftur í búrið eftir 13 mánaða fjarveru. Ronda entist ekki í eina mínútu með meistaranum Amöndu Nunes. 31. desember 2016 07:08
Nunes: Skil ekki hvernig þessar stelpur gátu tapað fyrir Rondu Amanda Nunes, heimsmeistari í bantamvigt, hefur fengið á baukinn fyrir að sýna Rondu Rousey mikla vanvirðingu eftir að hafa lamið hana í harðfisk á 48 sekúndum. 6. janúar 2017 22:45