Átta særðust í skotárás við mosku í Frakklandi Kristín Ólafsdóttir skrifar 3. júlí 2017 06:51 Árásin átti sér stað í borginni Avignon í suðurhluta Frakklands. Google Maps
Átta eru særðir eftir að tveir menn hófu skothríð við mosku í Avignon í Frakklandi í gærkvöldi. Talið er að árásin tengist unglingaerjum. BBC greinir frá. Árásin átti sér stað um 22:30 að staðartíma er fólk yfirgaf Arrahma-moskuna í Avignon eftir bænahald í gærkvöldi. Hinir grunuðu, sem sagðir eru hafa beitt skammbyssu og riffli, mættu á staðinn í bíl af tegundinni Renault Clio áður en þeir hófu skothríð. Lögregla segir ekki rannsaka árásina sem hryðuverk. Fjórir særðust fyrir utan moskuna. Þá særðist einnig fjögurra manna fjölskylda, þar á meðal sjö ára stúlka, vegna sprengjubrota sem bárust inn í íbúð þeirra úr árásinni. Saksóknari í Frakklandi sagði árásina ekki tengda hryðjuverkum. „Það að hún átti sér stað á götu við trúarlega stofnun var árásinni ótengt,“ sagði saksóknarinn. Talið er að árásin tengist erjum á milli unglinga á svæðinu. Á fimmtudag var maður handtekinn við að reyna að aka bíl á hóp fólks fyrir framan mosku í París. Enginn særðist við tilræðið. Viðbúnaðarstig í Frakklandi er enn hátt í kjölfar árásar á lögreglumann í París í apríl og fleiri hryðjuverkaárása í landinu síðustu ár.#Avignon : la piste de l'attentat écartée après la fusillade https://t.co/H3WzW1sjT6 pic.twitter.com/CEhAg9Spjt— La Provence (@laprovence) July 2, 2017
Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Fleiri fréttir Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Sjá meira