Lögreglumaður stunginn í hálsinn á flugvelli í Michigan Kristín Ólafsdóttir skrifar 21. júní 2017 22:19 Bandaríska alríkislögreglan rannsakar málið sem mögulegt hryðjuverk. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Lögreglumaður var stunginn í hálsinn á flugvelli í Michigan-fylki í Bandaríkjunum í dag. Bandaríska alríkislögreglan rannsakar málið sem mögulegt hryðjuverk en árásarmaðurinn er Kanadamaður. Alþjóðlegi Bishop-flugvöllurinn í bænum Flint í Michigan-fylki í Bandaraíkjunum var rýmdur eftir að maður, sem síðar var nafngreindur sem Amor Ftouhi frá Quebec í Kanada, stakk lögreglumann á flugvellinum í hálsinn með hnífi. Samkvæmt frétt AP-fréttaveitunnar er Ftouhi sagður hafa hrópað „Allahu akbar“ er hann réðist til atlögu. Talsmenn Bandarísku Alríkislögreglunnar, FBI, sem fara nú með rannsókn málsins, segja enn fremur að Ftouhi hafði sagt eitthvað á borð við „þið hafið drepið fólk í Sýrlandi, Írak og Afganistan og við munum öll deyja,“ er hann framdi voðaverkið. Hann var síðar leiddur á brott af lögreglu. Ástand lögregluþjónsins sem Ftouhi stakk er nú stöðugt. Flugvöllurinn var rýmdur rétt um klukkn 10 fyrir hádegi að staðartíma. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur verið látinn vita af stunguárásinni. Engin frekari hætta er talin vera á ferðum en embættismenn hyggjast nú gera „aukalegar varúðarráðstafanir“ í kjölfar árásarinnar.
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira