Skemmtilegt að njósna um mömmu og pabba Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 2. apríl 2017 09:15 Gunnar Páll leikur sér úti þegar veðrið er gott. Fréttablaðið/Eyþór Árnason
Gunnar Páll Elvarsson er úti að leika með bekkjarfélaga sínum í Vestmannaeyjum enda veðrið upp á það besta. Hvað skyldi honum þykja skemmtilegast að gera? Skemmtilegast er að njósna um mömmu og pabba og líka að fá páskafrí í skólanum. Æfir þú einhverjar íþróttir? Ég æfi fótbolta með ÍBV og golf með Golfklúbbi Vestmannaeyja. Hvað langar þig að verða? Mig langar að verða lögga, sjúkrabílstjóri og slökkviliðsmaður. Hvað ætlar þú að gera í sumar? Ég ætla að fara til útlanda, ég ferðast til sex landa og ég hugsa að ég heimsæki Legoland í Þýskalandi. Svo ætla ég líka að halda áfram að læra golf inni í Herjólfsdal. Ferðu oft í dalinn? Ég hjóla þangað stundum. Æfði mig að hjóla þar og hjólaði reyndar bæði á vegg og ruslatunnu. Hefur þú verið á Þjóðhátíð? Já, mér finnst ótrúlega gaman á Þjóðhátíð. En ég sleppi henni núna í sumar af því að ég verð í útlöndum. Heyrir þú oft talað um eldgosið í Eyjum? Já, Þingholt, húsið hennar Þórsteinu ömmu minnar og Páls afa fór undir hraunið og ég fer stundum að steini sem er þar sem húsið stóð. Ég á rosalega marga frændur og frænkur hér í Eyjum og hef heyrt mikið um gosið. Hefur þú farið á sjó? Nei, ekki enn þá, bara verið um borð í bát sem heitir Huginn þegar var verið að færa hann í höfninni. Greinin birtist fyrst 1. apríl 2017
Lífið Mest lesið Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Gefa yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Fleiri fréttir Gefa yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Sjá meira