Landsliðsþjálfari Spánar skilur vel að Enrique sé þreyttur hjá Barcelona Tómas Þór Þórðarson skrifar 2. mars 2017 11:30
Julen Lopetegui, landsliðsþjálfari Spánar í fótbolta, skilur vel að Luis Enrique þurfi að hvíla sig og ætli því að hætta sem þjálfari Spánarmeistara Barcelona. Enrique tilkynnti eftir 6-1 sigur Börsunga á Sporting Gijón í gærkvöldi að hann lætur af störfum í lok leiktíðar en með sigrinum komst Barcelona á toppinn í deildinni þar sem Real Madrid hefur verið um langa hríð. Enrique verður samningslaus í sumar og ætlar ekki að endurnýja samninginn við Katalóníufélagið en hann er búinn að vinna átta stóra titla síðan hann tók við liðinu. Hann vann þrennuna (deild, bikar og Meistaradeild) á sinni fyrstu leiktíð. „Ég skil ákvörðun hans vel. Það er eðlilegt að hann sé orðinn þreyttur. Það tekur á að stýra Barcelona. Ég hef talað við hann nokkrum sinnum en aldrei um þetta málefni. Ég skil þetta samt vel,“ segir Lopetegui. „Þetta er ákvörðun sem hann tók sjálfur og hann hefur vafalítið hugsað þetta vel. Þetta er það sem Luis finnst best. Hann getur verið stoltur af því sem hann hefur afrekað hjá Barcelona. Luis er búinn að sanna sig sem heimsklassa þjálfara,“ segir Julen Lopetegui, .BREAKING NEWS: @LUISENRIQUE21 announces he will not continue as Barça manager next season. #FCBlive pic.twitter.com/pqYOnWxUy9— FC Barcelona (@FCBarcelona) March 1, 2017
Spænski boltinn Tengdar fréttir Luis Enriquie hættir með Barcelona í lok tímabilsins Luis Enrique þjálfari Barcelona mun hætta með liðið eftir þetta tímabil en hann tilkynnti þetta eftir sigur liðsins á Sporting Gijón í kvöld. 1. mars 2017 21:00 Mest lesið Skaðbrenndur Hemmi fer ekki aftur í eldhúsið Íslenski boltinn Gerði umdeilda skiptingu: „100 prósent pirraður og ég skil hann vel“ Íslenski boltinn Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Enski boltinn Frank Booker fer yfir hnéskeljarbrotið: „Löppin bara hékk á eftir mér“ Körfubolti Reglum um gul spjöld á HM verði breytt Fótbolti Albert lenti í slysi með sleikjó og braut framtönn Íslenski boltinn FH spilaði í blárri Henson treyju: „Við vildum ekki fara bara í einhvern lit“ Íslenski boltinn Sölvi Geir: Fengum hann til félagsins út af þessu Íslenski boltinn Sjáðu öll 26 mörkin úr Bestu deildinni í gær Íslenski boltinn Illa farið með Þórsara: „Þetta er bara rangt“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Illa farið með Þórsara: „Þetta er bara rangt“ Arnór Ingvi ætti að vera klár fyrir Valsleikinn Gerði umdeilda skiptingu: „100 prósent pirraður og ég skil hann vel“ Reglum um gul spjöld á HM verði breytt Sjáðu öll 26 mörkin úr Bestu deildinni í gær Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Sölvi Geir: Fengum hann til félagsins út af þessu FH spilaði í blárri Henson treyju: „Við vildum ekki fara bara í einhvern lit“ Skaðbrenndur Hemmi fer ekki aftur í eldhúsið Stjarnan - Valur 2-4 | Stórskemmtun í suddanum á Samsung KR - FH 4-2 | Frábærir KR-ingar Aron: 4-2 verður að duga í dag Alexander Linta: Stjórnin er að skoða styrkingu á leikmannahópnum Albert lenti í slysi með sleikjó og braut framtönn Viktor Bjarki skoraði með hælspyrnu Breiðablik - Þór Ak. 4-0 | Sóknarleikur Blika vaknaði með látum Víkingur R. - ÍA 4-0 | Víkingar kafsigldu Skagamenn í seinni Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Modric í aðgerð eftir harkalegt höfuðhögg Fram - ÍBV 5-1 | Framarar með flugeldasýningu gegn vonlausum Eyjamönnum Fá leyfi til að leika sér í fríinu Biðst afsökunar á hnefasamlokunni Hefur Valur efni á að spila Samúel í kvöld? Mikilvægt að endurræsa myndlykilinn Fékk sér tebolla með Ratcliffe Setti sjálfan sig í bann eftir ásakanir Sjáðu mörkin fyrir norðan og svakalegt fagn Davíðs „Eins og sprengjum væri varpað á völlinn því það brjáluðust allir“ Frá út leiktíðina og missir af HM Umfjöllun og viðtöl: KA 1-2 Keflavík | Fyrsti sigur Keflavíkur Sjá meira
Luis Enriquie hættir með Barcelona í lok tímabilsins Luis Enrique þjálfari Barcelona mun hætta með liðið eftir þetta tímabil en hann tilkynnti þetta eftir sigur liðsins á Sporting Gijón í kvöld. 1. mars 2017 21:00