„Keyra á ljósabekkina“ fyrir úrslitaleikinn Valur Páll Eiríksson skrifar 18. september 2026 12:01 Kári Sigfússon, leikmaður Fylkis. Vísir/Sigurjón Kári Sigfússon, leikmaður Fylkis, þekkir það vel að spila úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar á Laugardalsvelli. Hann gerir það þriðja árið í röð á morgun. „
Mönnum líður frábærlega. Þetta er spennandi tækifæri fyrir leikmenn og klúbbinn sjálfan,“ segir Kári um úrslitaleik Fylkis og Þróttar sem fram fer á Laugardalsvelli á morgun. Klippa: Spilar úrslitaleikinn þriðja árið í röð Kári spilaði úrslitaleikina 2024 og 2025 með Keflavík. Hann tapaði í fyrra skiptið en vann í það seinna og skoraði mark í sigri Keflavíkur á HK í fyrra. Segja má því að hann þekki þessa leiki vel. „Hundrað prósent. Ég er með bullandi reynslu af þessu og er spenntur fyrir þessu. Eins og ég hef sagt við leikmenn í liðinu að halda ró sinni og þetta verður ekkert eðlilega gaman,“ segir Kári sem segir Fylkismenn mæta fulla sjálfstrausts eftir sigur á HK í undanúrslitum umspilsins. „Við erum búnir að sanna það að við getum unnið inni í Kór sem ekkert lið gat á tímabilinu.“ En það hefur kannski tekið smá tíma að ná sér niður eftir þessi miklu læti í HK-leiknum á sunnudaginn? „Við tókum bara rólega æfingu á mánudeginum og svo erum við bara að keyra á ljósabekkina núna til að líta vel út á vellinum,“ segir Kári léttur. Hann býst þá við skemmtilegum leik á morgun. „Við erum að búast við skemmtilegum leik. Miðað við úrslitaleikina 2023 og 2024 þá held ég að þetta verði miklu opnara. Mér finnst hafa verið mikil taugaspenna í þessum leikjum síðustu ár. Ég held að menn komi rólegri inn í ár og þetta verði mjög gaman.“ Þróttur og Fylkir mætast klukkan 16:15 á morgun. Leikurinn verður sýndur á Livey og lýst í beinni textalýsingu hér á Vísi.
Fylkir Lengjudeild karla Þróttur Reykjavík Íslenski boltinn Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira