Umfjöllun, viðtöl, einkunnir og myndir: FH - KR 0-1 | Dramatískt sigurmark Chopart Stefán Árni Pálsson skrifar 8. ágúst 2016 21:30 Kennie Chopart í leiknum í kvöld. vísir/andri
KR vann í kvöld ótrúlegan sigur á FH í Pepsi-deild karla en Kennie Knak Chopart skoraði sigurmark leiksins á áttundu mínútu uppbótartímans þegar hann slapp inn fyrir vörn FH eftir sendingu Jeppe Hansen. Chopart stóð af sér baráttu við Kassim Doumbia, varnarmann FH, sem féll í grasið en Erlendur Eiríksson, dómari leiksins, sá ekkert athugavert við viðskipti þeirra. Skömmu fyrir lok venjulegs leiktíma meiddist Aron Bjarki Jósepsson, varnarmaður KR, illa á ökkla og þurfti að bera hann af velli sem skýrði óvenjulangan uppbótartíma í leiknum. Fram að markinu hafði verið lítið um færi í leiknum sem var nokkuð jafn. Úrslitin eru þó afar mikilvæg þar sem að Stjarnan er nú aðeins einu stigi á eftir FH á toppnum og Fjölnir tveimur. KR hoppaði svo upp í sjöunda sæti deildarinnar og er nú með nítján stig.Af hverju vann KR ?KR-ingar fengu einfaldlega betri færi í leiknum og nýttu eitt þeirra. Það var einnig augljóst á KR-ingum að það er kominn mikill baráttuhugur í liðið og ætla leikmenn KR greinilega að koma liðinu aftur á beinu brautina. Liðið fer núna upp í 19 stig og er í raun komið í baráttu um Evrópusæti. FH-ingar eru sem fyrr í efsta sætinu en þeir þurfa að skoða sinn gang, sérstaklega sóknarlega.Þessir stóðu upp úrKennir Knak Chopart var duglegur í leiknum og fékk boltann oft í lappir og reyndi að gera eitthvað við hann. Aftur á móti voru það varnarmennirnir sem stóðu upp úr í dag. Bergsveinn Ólafsson hjá FH og Indriði Sigurðsson hjá KR. Báðir stjórnuðu þeir varnarleik liðanna vel, nema FH-ingar misstu einbeitingu undir lok leiksins.Hvað gekk illa?Allt uppspil hjá FH gekk illa. Liðið náði illa að tengja saman nokkrar góðar sendingar og ef það gerðist voru þær aftarlega á vellinum. FH skapaði sér í raun ekki færi í leiknum, ekki neitt stórhættulegt. KR-ingar þurfa vissulega að skoða sóknarleik sinn og bæta hann, en liðið sýndi frábæran varnarleik í kvöld.Hvað gerist næst?Næst eru bæði lið að fara spila stórleiki. FH-ingar mæta Fjölni og KR-ingar mæta Breiðablik. Það gæti því margt skýrst í næstu umferð. Ætlar KR að blanda sér í toppbaráttuna? Eða ætlar FH að hleypa öðrum liðum á toppinn? Heimir: Erum steinsofandi undir lokinHeimir Guðjónsson þjálfari FH.„Það eru mikil vonbrigði að tapa þessum leik. Þetta var bara innkast undir lokin og við bara steinsofandi og fáum á okkur mark,“ segir Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, eftir leikinn. „Jafntefli hefðu nú sennilega verið sanngjörn úrslit, en við sluppum ekki í kvöld. Við spiluðum ekki nægilega vel í kvöld, eftir mjög góðan leik upp á Skaga í síðustu umferð. Það vantar stöðuleiki í okkar leik.“ Heimir segist vera ósáttur við það að leikmenn FH séu oft á tíðum að gefa boltann frá sér á slæmum stöðum á vellinum. „Þeir fá dauðfæri í seinni hálfleik og kom það nokkuð eftir okkar klaufamistök. Í seinni hálfleik komust við í fína stöðu en það vantaði alltaf upp á þessa úrslitasendingu á síðasta þriðjungnum.“ Willum: Þetta gefur okkur ekki bara stigin þrjú, heldur eflir okkur í trúnniWillum Þór og lærisveinar hans unnu í Krikanum í kvöld.vísir/hanna„Það var auðvitað extra gott að klára þetta undir lokin og gefa þeim ekki færi á því að svara,“ segir Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, eftir leikinn. „Hér fór fram hörkuleikur tveggja góðra liða. Mér fannst við hafa frumkvæðið í fyrri hálfleik og pressuðum þá mjög vel. Þeir fengu aldrei tækifæri að komast í sitt spil en við áttum í vandræðum með að skapa okkur færi í byrjun leiksins.“ Hann segir að svona leiki verði oft á tíðum einhverskonar refskák. „Þetta datt síðan bara auðvitað fyrir okkur undir lokin. Þetta var óvenju sætt hjá okkur í kvöld. Við lögðum upp með að setja alltaf pressu á boltamanninn og gerðum það vel í kvöld,“ segir Willum og bætir við að liðið sé vel spilandi og KR-ingar geti alltaf skapað sér góð færi. „Þessi deild er ótrúleg og sérstök. Við förum vel upp töfluna með þessum sigri. Við erum heldur betur að hressast núna. Það getur svo sannarlega verið dýrmætt fyrir okkur andlega að vinna Íslandsmeistarana á þeirra eigin heimavelli. Þetta gefur okkur ekki bara stigin þrjú, heldur eflir okkur í trúnni.“ Kennie: Hver sagði að FH væri besta liðið á Íslandi?„Við erum mjög ánægðir með þessi þrjú stig en hver sagði að þetta væri besta liðið á Íslandi,“ sagði Kennie Knak Chopart, leikmaður KR, eftir að hafa skorað sigurmarkið í kvöld. „Við gefumst aldrei upp í neinum leik, en undanfarið hafa hlutirnir ekki verið að falla með okkur. Núna erum við samt að berjast enn meira og ég er mjög ánægður með alla strákana í kvöld.“ Kennie skoraði sigurmarkið í uppbótaríma. „Ég fékk boltann frá Denis, sem setti mig í gegn og ég veit ekki alveg hvað Doumbia var að gera í vörninni hjá FH. Ég er sterkur og hættulegur í þessari stöðu og vissi að ég myndi skora.“vísir/hannaKennie í leiknum.Vísirvísir/hanna
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Körfubolti Látinn aðeins 29 ára Körfubolti Viðar Örn settur í agabann Íslenski boltinn Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Körfubolti Uppgjörið: ÍBV - Valur 26-30 | Valur tryggði sér titilinn í annarri tilraun Handbolti Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu Körfubolti „Það er komin pressa“ Körfubolti Karlotta hljóp alls 742,6 kílómetra í Búlgaríu Sport „Þeir eru bara dónalegir og rífast til baka“ Sport Fjölluðu um aukið hártog: „Þetta er galið og út með þetta“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Skagamenn eru bara ennþá að leita að nýju DNA“ Viðar Örn settur í agabann Sjáðu dramatíkina í Kópavoginum og öll mörkin úr Bestu deild kvenna Fjölluðu um aukið hártog: „Þetta er galið og út með þetta“ „Ef Örvar hefði látið sig detta hefði þetta verið víti“ Uppgjörið: Þróttur - Grindavík/Njarðvík 1-2 | Nýliðarnir unnu í Laugardalnum Uppgjörið: Fram - Víkingur 0-1 | Víkingssigur í Reykjavíkurslag „Þetta var vont“ „Get ekki sagt að þetta hafi verið sannfærandi sigur“ Uppgjörið: Breiðablik - Valur 3-2 | Ótrúlegur sigur Blika Þegar Martin Eyjólfsson varð Bjargvætturinn Sjáðu mark Hallgríms frá miðju Umfjöllun: Stjarnan - FH 1-2 | FH hafði betur í fjörugum nágrannaslag Uppgjörið ÍBV - Þór/KA 2-0 | Fullkomin byrjun nýliðanna heldur áfram Uppgjörið: KA - ÍBV 2-0 | Sjálfsmark sökkti gestunum í lok leiks Besta byrjun KR í efstu deild síðan árið 1959 Fullkomin byrjun Þróttara heldur áfram Sjáðu magnaða endurkomu KR og flautumark Fram Umfjöllun og viðtöl: ÍA - Keflavík 1-3 | Nýliðarnir hirtu stigin þrjú gegn Skagamönnum Landsliðskonan sögð löt en svaraði svo með flottum leik Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KR 2-3: Halda áfram að kremja mótherjana eins og skordýr Fylgist ekki með umræðunni um starf sitt: „Maður er samt ekkert vitlaus“ Bragi Karl skoraði í fyrsta sigri Njarðvíkinga Ólafur Ingi hundfúll „Ég er búinn að vera að bíða lengi eftir þessu tækifæri“ Umfjöllun: Breiðablik - FH 3-3 | Sex marka jafntefli í Kópavogi Uppgjörið: Fram - Valur 3-2 | Byström kom inná og skoraði sigurmark í þriðja sigri Fram í röð Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - Þór 6-0 | Nýliðar teknir í kennslustund Hræðileg en sanngjörn úrslit: „Við þurfum að vera aðeins stærri“ „Þá verðum við á góðum stað“ Sjá meira