Sæti strákanna okkar á listanum yfir markahæstu menn EM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. júlí 2016 09:30 Kolbeinn Sigþórsson varð efstur af íslensku strákunum. Hér kyssir hann barnið sitt eftir Englandsleikinn. Vísir/EPA
Sex leikmenn skoruðu fyrir Ísland á Evrópumótinu í Frakklandi og eftir úrslitaleikinn í gær er ljóst í hvaða sætum þeir enduðu á listanum yfir markahæstu menn keppninnar. UEFA raðar mönnum upp eftir sérstökum reglum. Ef menn eru jafnir er fyrst farið eftir hvor eða hver hefur lagt upp fleiri mörk fyrir félaga sína og svo eftir því hvor eða hver hefur spilað fleiri mínútur. Frakkinn Antoine Griezmann varð markahæstur á mótinu en hann skorað tvöfalt meira en næstu maður á lista og þrefalt meira en markahæstu menn Íslands. Kolbeinn Sigþórsson og Birkir Bjarnason voru markahæstu menn íslenska liðsins með tvö mörk hvor en Kolbeinn er sæti ofar af því að hann spilaði færri mínútur. Jón Daði Böðvarsson og Gylfi Þór Sigurðsson voru báðir með mark og stoðsendingu. Jón Daði (29. sæti) er samt þremur sætum ofar en Gylfi (32. sæti) af því að hann spilaði færri mínútur. Arnór Ingvi Traustason er síðan efstur af þeim sem skoruðu eitt mark en náðu ekki að leggja upp enda spilaði hann mjög lítið á EM. UEFA skráði aðeins 11 mínútur á Arnór Ingva. Ragnar Sigurðsson er neðstur á listanum af íslensku leikmönnunum en það eru fimm leikmenn neðar en hann af þeim sem skoruðu. Neðstur er Frakkinn Paul Pogba sem er í 76. sæti en hann skoraði eitt mark á 602 mínútum.Sæti íslensku leikmannanna á listanum yfir markahæstu menn: 18. sæti - Kolbeinn Sigþórsson - 2 mörk á 404 mínútum 19. sæti - Birkir Bjarnason - 2 mörk á 450 mínútum 29. sæti - Jón Daði Böðvarsson - 1 mark og 1 stoðsending á 364 mínútum 32. sæti - Gylfi Þór Sigurðsson - 1 mark og 1 stoðsending á 450 mínútum 36. sæti - Arnór Ingvi Traustason - 1 mark á 11 mínútum 69. sæti - Ragnar Sigurðsson - 1 mark á 450 mínútum
EM 2016 í Frakklandi Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti Laun Infantino meira en þrefaldast á áratug Fótbolti Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Enski boltinn Grindavík - Njarðvík 68-72| Njarðvík tryggði sér oddaleik Körfubolti Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Formúla 1 Fanney og Thelma Evrópubikarmeistarar Fótbolti Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Enski boltinn Haukur allt í öllu hjá Löwen Handbolti Njarðvíkingar rændir marki og þurfa að bíða lengur eftir sigri Íslenski boltinn Skellt í lás eftir afhroðið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laun Infantino meira en þrefaldast á áratug Þróttur og HK á toppnum Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Langþráður og lífsnauðsynlegur sigur Þóris og félaga Sjáðu mörkin úr endurkomunni í Eyjum Skellt í lás eftir afhroðið Njarðvíkingar rændir marki og þurfa að bíða lengur eftir sigri Fanney og Thelma Evrópubikarmeistarar Uppgjörið: ÍBV - Víkingur Reykjavík 3-2 | Nýliðarnir með endurkomusigur Gíraður í Reykjavíkurslag: „Hlaupum á Val á hundrað kílómetra hraða“ Sjáðu mörkin: Fyrsti sigur nýliðanna, endurkoma Þróttara og Stjarnan skein skært Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Skýr í svörum aðspurður um möguleika KR á Íslandsmeistaratitli Mistókst hrapallega að fá fulltrúa Ísraels og Palestínu saman á mynd Eina þjóðin sem kom ekki á ársþing FIFA en með á HM Wood færði Forest nauma forystu gegn Villa Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 2-1| Nýliðarnir með dramatískan sigur í fyrsta heimaleiknum Sagan með Val en KR á flugi Uppgjörið: Þróttur R. - FH 2-1 | Sætur sigur Þróttara Gætu endað í þyrlu til Eyja Eiður og Arnór spili ekki á laugardaginn Klúðraði þremur vítum og var síðan rændur sigurmarki Liðsfélagi Stefáns og Alfons kveikjan að risastóru dómsmáli Ronaldo lenti í hörkurifrildi í toppslagnum Mainoo áfram í Manchester næstu árin Mikil spenna á Akureyri og miðum fjölgað: „Gríðarleg eftirspurn“ Hemmi og Óskar hituðu upp fyrir stórleikinn Óvenjuleg hárgreiðsla Kristals verði til þess að fólk vanmeti hann Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Sjá meira