Alfreð: Elska að skora mörk Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. júní 2016 22:14 Alfreð kom Íslandi í 3-0 á 42. mínútu. vísir/eyþór
Alfreð Finnbogason skoraði sitt áttunda landsliðsmark þegar Ísland vann öruggan 4-0 sigur á Liechtenstein í síðasta vináttulandsleik íslenska liðsins áður en það heldur til Frakklands á morgun. „Þetta var mjög gott. Planið var að rífa okkur upp eftir Noregsleikinn og kveðja fólkið með stæl. Þetta er ekki sterkasti andstæðingurinn en við unnum okkar vinnu og kláruðum þetta eins og menn,“ sagði Alfreð í samtali við blaðamenn eftir leikinn í kvöld. „Við reyndum að hugsa ekki um að þetta væri Liechtenstein, allavega í varnarvinnunni. Við vorum meira að undirbúa okkur fyrir EM en að hugsa um andstæðinginn. Það voru ákveðin atriði sem gengu mjög vel,“ bætti framherjinn við.Sjá einnig: Einkunnir Íslands: Birkir Már bestur í jöfnu liði Íslands Hann segir að leikurinn í kvöld hafi ekki verið hugsaður sem undirbúningur fyrir einhverja sérstaka andstæðinga á EM. „Í rauninni ekki. Eini leikurinn sem við erum að hugsa um er Portúgalsleikurinn,“ sagði Alfreð en Íslendinga mæta Cristiano Ronaldo og félögum í portúgalska landsliðinu í Saint-Étienne 14. júní. Hann segir að það hafi verið gott að skora svona skömmu fyrir mót. „Ekki spurning. Ég neita því ekkert að ég elska að skora mörk og er alltaf sáttur þegar ég næ að gera það fyrir landsliðið,“ sagði Alfreð sem hefur skorað þrjú af átta mörkum sínum fyrir landsliðið eftir að undankeppni EM 2016 lauk síðasta haust.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport Arsenal jafnaði rúmlega aldargamalt félagsmet Fótbolti Segir Amorim ekki geta gert kraftaverk Fótbolti Þurfti að kaupa nýjan iPhone fyrir alla í liðinu Fótbolti Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Liverpool vann risaslaginn Fótbolti Ógnaði leikmanni Tottenham með byssu út á götu Enski boltinn Jafnteflin ríkjandi í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Dagskráin í dag: Meistaradeildin heldur áfram Sport Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Körfubolti Fleiri fréttir Þurfti að kaupa nýjan iPhone fyrir alla í liðinu Segir Amorim ekki geta gert kraftaverk Arsenal jafnaði rúmlega aldargamalt félagsmet Jafnteflin ríkjandi í Meistaradeildinni í kvöld Liverpool vann risaslaginn Meistararnir lágu á heimavelli Sneypuför danskra til Lundúna Natasha semur við nýliða Grindavíkur/Njarðvíkur Slavia Prag engin fyrirstaða fyrir Arsenal Ráku lærlinga sem fögnuðu marki í beinni Falla fleiri gleðitár hjá fjölskyldu Viktors í kvöld? David Beckham aðlaður: „Ég gæti ekki verið stoltari“ Fram líka fljótt að finna nýja ást Viðtal Kjartans við Carrick: „Þolinmæðin minni og dómharkan meiri í hverri viku“ Steini um martraðarriðilinn: „Ekki draumaandstæðingar“ Veggmynd af Alexander-Arnold skemmd: „Bless, rotta“ Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Gyökeres ekki með Arsenal í Prag Þjálfaragoðsögn látin taka pokann sinn: „Ég er undrandi“ Þjálfari Alberts rekinn Of kalt til að Ísland geti mætt Noregi og Svíþjóð Sjáðu glæsilegan einleik Ndiayes og jöfnunarmarkið frá Xhaka „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Ronaldo kveðst vera betri en Messi: „Vil ekki vera hógvær“ Fannst Tottenham spila eins og fjórðu deildarlið gegn Chelsea Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Umboðsmaður hótaði leikmanni með byssu O'Neil tekur ekki við Úlfunum á ný Emilía opnaði markareikninginn gegn Ingibjörgu Fyrsti sigur í hús hjá Genoa Sjá meira