Eygló og Hrafnhildur í liði með margföldum meisturum Tómas Þór Þórðarson skrifar 11. desember 2015 06:00 Katinka Hosszú er líklega fremsti sundmaður Evrópu í dag en hún vann sex gull á EM í 25 metra laug. Vísir/EPA
Einvígið í lauginni, eins konar Ryder-bikar sundsins, hefst í Indianapolis í Bandaríkjunum í kvöld en þar mætir Evrópuúrvalið liði Bandaríkjanna. Eygló Ósk Gústafsdóttir, nýbakaður tvöfaldur bronsverðlaunahafi á EM í 25 metra laug, og Hrafnhildur Lúthersdóttir eru í Evrópuúrvalinu fyrstar Íslendinga. Þetta er í sjöunda sinn sem Einvígið fer fram og í fjórða sinn sem Bandaríkin mæta Evrópu, en þar áður háðu Bandaríkin og Ástralía keppni í þrígang. Bandaríkin hafa unnið í hvert einasta sinn en í Glasgow fyrir ári þurfti umsund til að skera úr. Evrópsku stjörnunnar minntu þar hressilega á sig. Alls verður keppt í 30 greinum; þrettán einstaklingsgreinum hjá hvoru kyni og tveimur boðsundsgreinum jafnt hjá körlum og konum. Sigurvegarinn í hverri grein fær fimm stig, annað sætið þrjú stig og þriðja sæti eitt stig. Keppt verður í 25 metra laug. Eygló Ósk keppir í 200 metra baksundi og Hrafnhildur í 100 og 200 metra bringusundi. Eygló klárar í kvöld og Hrafnhildur syndir fyrra sundið sitt. Þær eru umkringdar stórstjörnum í sínu liði og þegar litið er á verðlaunafjölda liðsfélaga íslensku stúlknanna má bersýnilega sjá hversu mikill heiður það er fyrir þær að vera valdar í liðið. Þær hafa líka unnið fyrir sínu sæti með frábærum árangri á árinu en báðar komust fyrstar kvenna í úrslit á HM í 50 metra laug fyrr á árinu. Eygló syndir mjög áhugavert sund í kvöld ásamt nýkrýndum Evrópumeistara, Katinku Hosszú, sem á heimsmetið í 25 metra laug, og heimsmeistaranum Missy Franklin frá Bandaríkjunum sem á heimsmetið í 50 metra laug. Þetta eru tvær af bestu, ef ekki hreinlega bestu sundkonur heims í dag. Hosszú, ungverska járnfrúin, vann sex gull á EM í Ísrael á dögunum. Evrópuúrvalið treystir á danska dínamítið Jeanette Ottesen og hina hollensku Ranomi Kromowidjojo í sprettunum á móti firnasterku liði Bandaríkjanna sem mæta einnig með ótrúlega sterkt lið til leiks. Ottesen og Kromowidjojo eiga samtals 91 verðlaun frá HM og EM og ef við bætum Hosszú þarna inn eru verðlaunin orðin 134. Þetta eru bara þrjár sundkonur! Ungverjarnir Dániel Gyurta og László Cseh eiga einnig að skila stigum fyrir evrópska liðið, en Cseh er heimsmeistari í 200 metra flugsundi. Rússinn Vladímír Morozov og Ítalinn Marco Orsi eiga svo að reyna að halda í við bandarísku eldflaugarnar á sprettinum. Keppnin tekur tvo daga og lýkur þar með stórmótunum hjá Eygló Ósk og Hrafnhildi á þessu ári en það er varla hægt að klára árið á betri hátt.
Sund Tengdar fréttir Ég barðist við tárin á pallinum Eygló Ósk Gústafsdóttir varð fyrst íslenskra kvenna í gær til að vinna til verðlauna á stórmóti í sundi. Hún vann brons í 100 m baksundi en keppir í dag í sinni sterkustu grein. 4. desember 2015 06:00 Einstakt ár Hrafnhildar Hrafnhildur Lúthersdóttir varð á árinu fyrst íslenskra kvenna til að synda til úrslita á HM í 50 m laug og annar Íslendingurinn sem tryggði sig inn á ÓL í Ríó. 20. nóvember 2015 06:00 Bronsstúlkan okkar Sundkonan Eygló Ósk Gústafsdóttir vann í gær til bronsverðlauna á Evrópumeistaramótinu í 25 metra laug í Ísrael, annan daginn í röð. Eygló setti tvö Íslandsmet á leið sinni upp á verðlaunapallinn. 5. desember 2015 07:00 Hrafnhildur og Eygló nálægt bestu tímum Evrópu Báðar syntu afar vel á Íslandsmeistaramótinu í 25 m laug í Hafnarfirði um helgina. 15. nóvember 2015 17:20 Eygló Ósk komst í undanúrslit í 50 metra baksundi Eygló Ósk Gústafsdóttir heldur áfram að slá í gegn á EM í 25 metra laug í Ísrael en hún komst í undanúrslit í 50 metra baksundi í dag eftir að hafa nælt í brons í 100 og 200 metrum. 5. desember 2015 11:00 Tíu gull og sjö Íslandsmet hjá Hrafnhildi | Myndir Hrafnhildur Lúthersdóttir átti sviðið á Íslandsmeistaramótinu í 25 m laug. 15. nóvember 2015 22:45 Hrafnhildur: Er ekki með fullan hraða Hrafnhildur Lúthersdóttir átti ótrúlega helgi á Íslandsmeistaramótinu í 25 m laug en á meira inni. 15. nóvember 2015 22:00 Eygló: Langt fram úr mínum væntingum Eygló Ósk Gústafsdóttir, sundkona úr Ægi, var skiljanlega hin kátasta þegar Vísir heyrði í henni hljóðið fyrir skemmstu; skömmu eftir úrslitasundið í 200 metra baksundi á Evrópumeistaramótinu í 25 m laug sem nú stendur yfir í Netanya í Ísrael. 4. desember 2015 17:46 Mest lesið Hamilton segir Ferrari þurfa nýjan ökumann því hann sé gagnslaus Formúla 1 Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Körfubolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu og Manchester United Sport Marta mætti og bjargaði Brasilíu Fótbolti Þessir þurfa að heilla Amorim Enski boltinn Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu Handbolti „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ Íslenski boltinn Ísland mátti þola stórt tap Körfubolti Brynjólfur Andersen með tvö gegn Wrexham Fótbolti Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Enski boltinn Fleiri fréttir Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu Marta mætti og bjargaði Brasilíu Messi meiddur af velli en Miami barðist til baka án hans Hamilton segir Ferrari þurfa nýjan ökumann því hann sé gagnslaus Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu og Manchester United Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Brynjólfur Andersen með tvö gegn Wrexham Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Ramsdale mættur til Newcastle Eggert Aron skoraði og lagði upp í stórsigri Brann „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles „Hefðum ekki átt að tapa þessum leik“ Davíð Snær og Guðlaugur Victor lögðu upp mörk „Ég vona að tjaldið mitt sé ennþá þarna, það verður gaman í kvöld“ Leclerc óvænt á ráspól í Ungverjalandi Ledecky lenti í vandræðum en hélt krúnunni Arnór og Ísak skoruðu í stórfurðulegum tíu marka leik Settu Íslandsmet í síðasta sundinu á HM í Singapúr Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Uppgjörið: ÍBV - KR 2-1 | Fyrirliðinn tryggði fögnuð í Eyjum „Einhver blástur en ekkert sem á að hafa svakaleg áhrif“ Handtekin fyrir að lemja kærastann en hann vildi ekki kæra „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Newcastle býður í Sesko Sjá meira
Ég barðist við tárin á pallinum Eygló Ósk Gústafsdóttir varð fyrst íslenskra kvenna í gær til að vinna til verðlauna á stórmóti í sundi. Hún vann brons í 100 m baksundi en keppir í dag í sinni sterkustu grein. 4. desember 2015 06:00
Einstakt ár Hrafnhildar Hrafnhildur Lúthersdóttir varð á árinu fyrst íslenskra kvenna til að synda til úrslita á HM í 50 m laug og annar Íslendingurinn sem tryggði sig inn á ÓL í Ríó. 20. nóvember 2015 06:00
Bronsstúlkan okkar Sundkonan Eygló Ósk Gústafsdóttir vann í gær til bronsverðlauna á Evrópumeistaramótinu í 25 metra laug í Ísrael, annan daginn í röð. Eygló setti tvö Íslandsmet á leið sinni upp á verðlaunapallinn. 5. desember 2015 07:00
Hrafnhildur og Eygló nálægt bestu tímum Evrópu Báðar syntu afar vel á Íslandsmeistaramótinu í 25 m laug í Hafnarfirði um helgina. 15. nóvember 2015 17:20
Eygló Ósk komst í undanúrslit í 50 metra baksundi Eygló Ósk Gústafsdóttir heldur áfram að slá í gegn á EM í 25 metra laug í Ísrael en hún komst í undanúrslit í 50 metra baksundi í dag eftir að hafa nælt í brons í 100 og 200 metrum. 5. desember 2015 11:00
Tíu gull og sjö Íslandsmet hjá Hrafnhildi | Myndir Hrafnhildur Lúthersdóttir átti sviðið á Íslandsmeistaramótinu í 25 m laug. 15. nóvember 2015 22:45
Hrafnhildur: Er ekki með fullan hraða Hrafnhildur Lúthersdóttir átti ótrúlega helgi á Íslandsmeistaramótinu í 25 m laug en á meira inni. 15. nóvember 2015 22:00
Eygló: Langt fram úr mínum væntingum Eygló Ósk Gústafsdóttir, sundkona úr Ægi, var skiljanlega hin kátasta þegar Vísir heyrði í henni hljóðið fyrir skemmstu; skömmu eftir úrslitasundið í 200 metra baksundi á Evrópumeistaramótinu í 25 m laug sem nú stendur yfir í Netanya í Ísrael. 4. desember 2015 17:46