Sjálfstæðisflokkurinn fær og eyðir mest Aðalsteinn Kjartansson skrifar 20. október 2015 13:28 Ríkisendurskoðun hefur birt upplýsingar um fjármál stjórnmálaflokka á síðasta ári. vísir/ernir
Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn á þingi sem skilaði tapi á síðasta ári. Þetta kemur fram í nýbirtum útdrætti úr ársreikningi stjórnmálaflokkanna sem birtir voru í dag á vef Ríkisendurskoðunar. Flokkurinn tapaði 36,7 milljónum króna á meðan hinir flokkarnir á þingi skiluðu allir afgangi. Mestum afgangi skiluðu Vinstri grænir, eða samtals 18,4 milljónum króna. Það er mikill viðsnúningur frá árinu 2013 þegar flokkurinn skilaði tapi upp á 42,7 milljónum. Vert er að nefna að þingkosningar fóru fram það ár en útgjöld flokka eru jafnan mun meiri þá en venjulega. Samfylkingin skilaði 2,6 milljóna króna afgangi, Píratar 9,99 milljónum og Framsóknarflokkurinn 7,3 milljónum. Sjálfstæðisflokkurinn ber höfuð og herðar yfir aðra þegar kemur að kostnaði og tekjum. Flokkurinn fékk 39,6 milljónir í framlög frá einstaklingum og 28,9 milljónir frá lögaðilum. Samfylkingin var með svipaðar tekjur af framlögum einstaklinga, 27,4 milljónir, en aðeins 8,4 milljónir frá lögaðilum. Rekstur Sjálfstæðisflokksins er líka umtalsvert kostnaðarsamari en rekstur hinna flokkanna. Samtals fóru 268 milljónir króna í rekstur flokksins og fasteigna, sem er þó rúmum 75 milljónum minna en árið 2013. Til samanburðar kostaði rekstur Pírata aðeins um 11,5 milljónir.
Alþingi Mest lesið Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Innlent Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Innlent Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins Erlent ICE dregur saman seglin í Minneapolis Erlent „Sprengjuflugvélar er ógnin sem við sjáum hér“ Innlent „Eins og við séum komin aftur á 1. mars 1989“ Innlent Ósammála um að það sé kostur að vera formaður utan þings Innlent Skoða að leigja hótel til að létta undir með bráðamóttökunni Innlent Átta ára dómur Sigurðar Ragnars staðfestur Innlent Tengslanet veikara og andleg líðan verri í dag en fyrir rýmingu Innlent Fleiri fréttir Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Ósammála um að það sé kostur að vera formaður utan þings Tengslanet veikara og andleg líðan verri í dag en fyrir rýmingu „Sprengjuflugvélar er ógnin sem við sjáum hér“ „Eins og við séum komin aftur á 1. mars 1989“ Vinnur fallega muni úr íslenskum trjám ASÍ og SA telja stjórnvöld á villigötum Jákvæð skref hafi verið tekin í vinnuhópi um málefni Grænlands Forstjóri í beinni, herþotur og bjór á vellinum Stúlkan er fundin Skoða að leigja hótel til að létta undir með bráðamóttökunni Ingibjörg fljót að rífa upp boxhanskana Hækkuðu gjaldið í skugga stúdentamótmæla Bjórinn nú leyfður á vellinum Íhugar að bjóða fram til varaformanns Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Lýsa eftir bíl sem var stolið fyrir utan Landspítalann Rafmagnslaust á Siglufirði Ríkisfjármálaleg tímasprengja, mistök eða tímabært réttlætismál? Átta ára dómur Sigurðar Ragnars staðfestur Vísbendingar um gerviverktöku í geiranum Hálf-íslenskur hermaður hluti af sænsku herflugsveitinni Mikið svifryk þrátt fyrir rykbindingu Blikkuðu í klukkustundir vegna skaddaðs jarðstrengs Samtök atvinnulífsins höfðu betur í Félagsdómi Fékk „hjálp“ frá heilbrigðiseftirlitinu til að velja sig sjálfa Baráttan um formannsembætti Framsóknar Viðbrögð Ölmu mikil vonbrigði Lýsa miklum vonbrigðum með viðbrögð Ölmu Vilja ráðast í breytingar á gamla bandaríska sendiráðinu Sjá meira