Gamalt fangelsi í Malmö nýtt fyrir hælisleitendur Atli Ísleifsson skrifar 30. september 2015 10:04 Kirsebergsfangelsið var opnað árið 1914. Mynd/Wikipedia
Mögulegt er að Kirsebergsfangelsið í sænsku borginni Malmö verði nýtt sem heimili fyrir hælisleitendur. Morgan Johansson, ráðherra innflytjendamála í Svíþjóð, hvatti um daginn stofnanir á vegum hins opinbera til að bjóða fram fasteignir sem mögulega væri hægt að nýta til að hýsa hælisleitendur. „Nú verða allir að hjálpast að. Fangelsismálastofnun er vön því að vinna að umönnun og við getum boðið fram ýmislegt til að finna megi lausn á þessu brýna viðfangsefni,“ segir fangelsismálastjórinn Nils Öberg í yfirlýsingu á heimasíðu stofnunarinnar. Auk hins 101 árs gamla Kirsebergsfangelsis hafa fangelsismálayfirvöld boðið fram hegningarhúsið í Smälteryd í Vestur-Gautlandi. Fangelsinu í Smälteryd hefur verið lokað á meðan verið er að gera upp Kirsebergsfangelsið. Kirsebergsfangelsinu var lokað tímabundið í maí og gat þá hýst 151 fanga, þó að búist sé við að mögulegt verði að hýsa umtalsvert fleiri hælisleitendur í húsnæðinu.
Flóttamenn Mest lesið Fimmtán ára stúlka drap tvo fyrir Foxtrot-gengið Erlent Ætla ekki að reka legurými í Klíníkinni Innlent Kastaðist marga metra eftir að ekið var á hann Innlent Fólkaflokkurinn fram úr Javnaðarflokknum Erlent „Sem betur fer er okkar maður ekki illa meiddur“ Innlent Árnesingur og Rangæingur grafa fyrir Hvammsvirkjun Innlent Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Innlent Þakkar Google Translate fyrir að engin börn mættu í skólann Innlent Þetta voru vinsælustu nöfnin á síðasta ári Innlent Varð fyrir „áfalli“ að sjá uppsagnarbréf Innlent Fleiri fréttir Fólkaflokkurinn fram úr Javnaðarflokknum Fimmtán ára stúlka drap tvo fyrir Foxtrot-gengið Flugvallarstarfsmenn á Tenerife í verkföll yfir páskana Heimta enn aðstoð sem þeir segjast ekki þurfa Boðar til viðræðna við sex flokka Forsætisráðherra á fundi bandamanna Úkraínu í Helsinki Færeyingar tvístígandi fyrir aðrar kosningarnar á þremur dögum Viðsemjendum fækkar: Araghchi og Ghalibaf gefin grið... í bili Segir viðsemjendur ekki þora að gangast við viðræðum Frederiksen fær umboð til stjórnarmyndunar Íranir hafna friðartillögu Bandaríkjamanna Ætla að lýsa öldunga látna nema þeir sýni lífsmark Allt velti á Rasmussen Skrúfa fyrir eina helstu leiðina fyrir gas til Úkraínu Tveir handteknir vegna sjúkrabílabrennu Vill halda áfram sem forsætisráðherra Íranir segja engar viðræður í gangi þvert á yfirlýsingar Trumps Biðlar til Løkke að mynda með sér miðhægristjórn Tæplega þúsund drónar á einum sólarhring Haaland keypti Heimskringlu á 17 milljónir „Markmiðið er ekki að komast til tunglsins, heldur búa þar“ Útgönguspá: Ríkisstjórninni refsað en Løkke í lykilstöðu Sendir líka fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda Listamaður reyndi að kaupa atkvæði Gengst nú við að gaspra í Rússa Trump „svindlaði“ í kosningum í Flórída Ísraelar hyggjast hernema suðurhluta Líbanon Á rúntinum með andefni Danir ganga að kjörborðinu í afar spennandi kosningum Gervigreindarmyndskeiðum af barnaníði fjölgar gífurlega Sjá meira