Jakob: Erum bæði svekktir og sáttir Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. september 2015 00:03 Jakob skoraði fimm stig í kvöld. vísir/valli „
Við vorum svakalega góðir í fyrri hálfleik fannst mér. Ég held að það hafi enginn búist við því að við yrðum fimm stigum undir í fyrri hálfleik gegn Spánverjum,“ sagði Jakob Örn Sigurðarson eftir 26 stiga tap Íslands fyrir Spáni á Evrópumótinu í körfubolta í kvöld. „Við erum bæði svekktir og sáttir en ég var rosalega ánægður með fyrri hálfleikinn,“ bætti Jakob við en hann skoraði fimm stig í kvöld á rúmum 22 mínútum. Hann segir að þreytan hafi sagt til sín í seinni hálfleiknum þar sem Spánverjar voru með öll völd á vellinum. „Þeir eru með meiri breidd og allir tólf leikmennirnir hjá þeim eru mjög góðir. Eðlilega dregur meira af okkur en þeim þar sem við erum að spila á færri mönnum,“ sagði Jakob. Íslenska liðið mætir Tyrklandi á morgun í síðasta leik sínum í B-riðli og stefna strákarnir á sigur í þeim leik. „Þetta er síðasti séns á að vinna leik í þessum riðli. Við ætlum að gefa allt í þennan leik og ef við spilum eins og við gerðum í fyrri hálfleik í dag held ég að við séum í góðum málum,“ sagði Jakob sem hefur ekki áhyggjur af því að félagar hans í landsliðinu sem eru samningslausir eigi í vandræðum með að finna sér lið fyrir veturinn. „Það efast ég um, þeir eru að spila svakalega vel og ég trúi ekki öðru en að menn séu að fylgjast með þeim og þeir verði eftirsóttir eftir mótið,“ sagði Jakob sem er sjálfur samningsbundinn Borås Basket í Svíþjóð.
EM 2015 í Berlín Mest lesið Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport Þurfti að kaupa nýjan iPhone fyrir alla í liðinu Fótbolti Arsenal jafnaði rúmlega aldargamalt félagsmet Fótbolti Ógnaði leikmanni Tottenham með byssu út á götu Enski boltinn Segir Amorim ekki geta gert kraftaverk Fótbolti Liverpool vann risaslaginn Fótbolti Dagskráin í dag: Meistaradeildin heldur áfram Sport Jafnteflin ríkjandi í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Meistararnir lágu á heimavelli Fótbolti Fleiri fréttir Kristófer Acox kallar sig glæpamann Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Stjarnan með þægilegan sigur á nýliðunum Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Íslandsmeistararnir mæta bikarmeisturunum Skagamenn senda Kanann heim Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Ólíkar niðurstöður hjá landsliðsmönnunum Er Tóti Túrbó ofmetinn? „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum „Bara feginn að við fundum þó leið“ Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum „Við þurfum að vera betri varnarlega“ Íslenski körfuboltinn og Grindavík verðlaunuð NBA-leikmaður með krabbamein Haukur Helgi: Höfum ekki verið að spila góðan körfubolta „Getum verið fjandi góðir“ Sjá meira