Arda Turan hetja Tyrkja í Kasakstan í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. júní 2015 17:54 Arda Turan. Vísir/EPA
Arda Turan, fyrirliði tyrkneska landsliðsins og leikmaður Atlético Madrid, var hetja síns liðs í kvöld þegar Tyrkir sóttu þrjú stig til Kasakstan í riðli Íslands í undankeppni EM 2016. Tyrkir þurftu að bíða þar til á 83. mínútu eftir eina marki leiksins en það skoraði Arda Turan með flottu skoti úr teignum eftir fyrirgjöf frá hægri. Tyrkir höfðu verið í stórsókn nær allan leikinn en virtist vera fyrirmunað að koma boltanum í markið þar til að fyrirliðinn tók til sinna ráða á lokamínútum leiksins. Tyrkir áttu vissulega skilið að fá markið enda áttu þeir að fá augljósa vítaspyrnu í fyrri hálfleik auk þess að skjóta í stöng í þeim seinni í báðum tilfellum var Burak Yılmaz á ferðinni upp við mark Kasaka. Jafnteflið hefðu verið fín úrslit fyrir íslenska landsliðið en eftir þennan sigur eru Tyrkir fjórum stigum á eftir íslenska landsliðinu sem mætir Tékkum á eftir á Laugardalsvellinum. Stigin þrjú komu liðinu upp fyrir Holland en Hollendingar mæta Lettum á útivelli seinna í kvöld. Tyrkir töpuðu fyrstu tveimur leikjum sínum í undankeppninni en hafa síðan náð stigum í fjórum leikjum í röð. Tyrkir eiga þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum á heimavelli þar á meðal lokaleik sinn á móti Íslandi.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Fleiri fréttir Manchester City - Brighton | Stórleikur í Manchester-borg Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Sjá meira