Snörp orðaskipti Magnúsar og Björns í dómsal Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 5. maí 2015 21:00 Magnús er ákærður fyrir aðild sína að viðskiptum eignarhaldsfélaganna Holt, Mata og Desulo en félögin keyptu hlutabréf í Kaupþingi af bankanum sjálfum með lánum frá Kaupþingi sem tók veð í bréfunum sjálfum. V'isir/GVA
Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, gaf skýrslu í dag í markaðsmisnotkunarmáli sem sérstakur saksóknari hefur höfðað gegn honum og átta öðrum fyrrverandi stjórnendum og starfsmönnum bankans. Magnús er ákærður fyrir aðild sína að viðskiptum eignarhaldsfélaganna Holt, Mata og Desulo en félögin keyptu hlutabréf í Kaupþingi af bankanum sjálfum með lánum frá Kaupþingi sem tók veð í bréfunum sjálfum. Telur saksóknari að viðskiptin hafi byggt á blekkingum og sýndarmennsku auk þess sem fé bankans hafi verið stefnt í verulega hættu þar sem endurgreiðsla lánanna hafi ekki verið tryggð, að því er segir í ákæru.„Vald þitt er mikið” Magnús byrjaði á því að ávarpa dóminn og beindi meðal annars orðum sínum að saksóknaranum, Birni Þorvaldssyni, sem var einnig saksóknari í Al Thani-málinu. Magnús afplánar nú fjögurra og hálfs árs langan fangelsisdóm vegna aðkomu sinnar að þeim viðskiptum.„Vald þitt er mikið þegar þú óskar eftir húsleitum á heimili mínu og fjölskyldu minnar, handtöku, gæsluvarðhaldi, farbanni, símhlerunum og margra ára fangelsisdómi. Þú situr undir þeirri pressu að embætti þitt hafði gefið upplýsingar til dómstólaráð að 9 ákærur myndu berast frá embættinu á árinu 2010 og 81 ákæra árin 2011, 2012 og 2013.”Embætti til að sefa reiði almennings Magnús velti því síðan upp hvernig sérstakur saksóknari hafi getað vitað í hversu mörgum málum hann myndi ákæra, þegar lá fyrir að rannsókn var ekki lokið í fjölda mála. Hann gerði svo að umtalsefni lögin sem sett voru um sérstakan saksóknara og viðbrögð stjórnvalda við því þegar hann og Hreiðar Már Sigurðsson voru handteknir og hnepptir í gæsluvarðhald í maí 2010.„Hvernig geta lög verið sett á Alþingi þar sem í athugasemd ráðherra með frumvarpinu stendur að einn tilgangur laganna um stofnun sérstaks saksóknara sé að sefa reiði almennings. Hlýtur þetta að vera einsdæmi sem og að daginn eftir handtöku mína fyrir 5 árum sagði forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir að handtökurnar og gæsluvarðhaldið væru upphafið að endurreisn Íslands.”Erfitt fyrir ákæruvaldið að sitja undir slíkum ávirðingum Þegar Magnús hafði lokið máli sínu sagði Björn saksóknari að það væri erfitt fyrir ákæruvaldið að sitja undir slíkum ávirðingum við upphaf hverrar skýrslutöku og geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér. Hann hafnaði svo öllu því sem fram kom í máli Magnúsar en tók því næst til við að spyrja hann út í ákæruatriðin. Fyrsta svar Magnúsar var á þessa leið:„Hvernig áttum ég og fjölskylda mín að bera hönd fyrir höfuð okkar þegar það var gerð húsleit á heimili mínu?”Sagði Magnús vera með útúrsnúninga Saksóknari byrjaði á því að spyrja Magnús almennt út í það hvernig ákvarðanataka vegna sölu hlutabréfa í Kaupþingi var sem og ákvarðanataka vegna lánaveitinga vegna slíkra kaupa. Gekk saksóknara illa að fá Magnús til að svara sem vildi fá nákvæmari spurningar um einstök viðskipti. Fór það svo að dómsformaður, Arngrímur Ísberg, blandaði sér í málið og bað saksóknara að spyrja ákærða út í ákæruatriðin en ekki svona almennt.„Það getur ekki verið þannig að það sé ekki hægt að spyrja ákærða af því að hann er með útúrsnúninga,” sagði Björn þá. Þessu mótmælti Kristín Edwald, verjandi Magnúsar, og sagði hann ekki vera með neina útúrsnúninga. Ákærði væri einfaldlega að biðja um að vera spurður út í ákæruatriðin sem honum eru gefin að sök.Man ekki hver hringdi vegna Holt Skemmst er frá því að segja að Magnús hafnaði því algjörlega að hafa komið að viðskiptum eignarhaldsfélaganna eða lánveitingum til þeirra eins og greint er frá í ákæru. Sagðist Magnús hafa rætt við Skúla Þorvaldsson, eiganda Holt, vegna kaupa félagsins á bréfum í Kaupþingi en hefði að öðru leyti hvergi komið nálægt viðskiptunum eða lánveitingum vegna þeirra.„Það var hringt í mig frá móðurfélaginu og ég var spurður hvort að Skúli Þorvaldsson vildi verða stærri hluthafi í félaginu. Því fylgdi strax þau boð að bankinn myndi lána til viðskiptanna gegn viðbótartryggingu frá Skúla sem var 5% eignarhlutur hans í Símanum,” sagði Magnús. Það væri því ekki rétt eins og saksóknari héldi fram að engin trygging hefði verið fyrir láninu. Björn spurði Magnús þá hver hefði hringt í hann og beðið hann um að tala við Skúla. Kvaðs Magnús hafa svarað því við yfirheyrslur þegar hann sat á Litla-Hrauni. Hann sagði þá að það hlyti annað hvort að hafa verið Sigurður Einarsson eða Ingólfur Helgason en í dag gæti hann ekki sagt neitt um það með óyggjandi hætti. Aðkoma hans að viðskiptum Mata hefði verið með svipuðum hætti en Magnús mundi þá að Ingólfur hringdi í sig og bað hann um að hafa samband við eiganda Mata vegna hlutabréfakaupa í bankanum. Magnús kvaðst hins vegar ekkert vita um lánveitinguna til félagsins vegna kaupanna. Hvað varðaði viðskipti Desulo sagði Magnús engin gögn í málinu benda til aðkomu sinnar að þeim viðskiptum. Hann hefði meðal annars aldrei rætt við eiganda Desulo og vissi ekki hvaða forsendur lágu að baki viðskiptunum eða lánveitingum vegna þeirra.
Alþingi Markaðsmisnotkun Kaupþings Tengdar fréttir Allt nema ristavélin tekið við húsleit Skýrslutaka yfir Magnúsi Guðmundssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg, fer nú fram í Héraðsdómi Reykjavíkur en hann er einn af ákærðu í umfangsmiklu markaðsmisnotkunarmáli sem sérstakur saksóknari hefur höfðað gegn honum og átta öðrum fyrrverandi starfsmönnum og stjórnendum bankans. 5. maí 2015 15:32 Sigurður Einarsson í héraðsdómi: „Traust mitt á réttarkerfinu er ekki lengur til staðar“ Dagurinn byrjaði á því að Sigurður sagði nokkur orð. 5. maí 2015 09:45 Heyrði nafnið Desulo fyrst í yfirheyrslu Augljóst er að það andar köldu á milli Björns Þorvaldssonar, saksóknara, og þeirra sakborninga sem sitja nú í fangelsi vegna Al Thani-málsins. 5. maí 2015 13:41 „Þetta er rétt hjá ákærða, hann er ekki í prófi“ Björn Þorvaldsson, saksóknari, spyr Sigurð Einarsson nú út í ákæruatriði í umfangsmiklu markaðsmisnotkunarmáli sem embætti sérstaks saksóknara hefur höfðað gegn honum og átta öðrum fyrrverandi starfsmönnum og stjórnendum Kaupþings. 5. maí 2015 10:58 Mest lesið Ekkert til í því að enginn rjómi sé í Rjómaísnum Neytendur Það getur allt gerst ef forstjórinn vakir fram yfir klukkan tíu Atvinnulíf Bankarnir byrjaðir að hækka vexti Neytendur Fjórar Kappahl-verslanir til viðbótar opnaðar á morgun Viðskipti innlent Óvænt að ekki sé mjólk og rjómi í ísnum Neytendur Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Samstarf Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Viðskipti innlent Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent Matvöruverð hækkar þvert á vöruflokka Neytendur Lítið fékkst upp í 217 milljóna kröfur í bú Kvikmyndaskólans Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfjaver opnar nýtt apótek í Klíníkinni Fjórar Kappahl-verslanir til viðbótar opnaðar á morgun „Af og frá“ að bankarnir græði á verðbólgu Stofnandi Bláa lónsins nú formaður stjórnar Lykilfólk úr Vélfagi stofnar nýtt sjávarútvegstæknifyrirtæki Ná sátt og geta haldið kjaraviðræðum áfram Ný sátt gerð og Míla sektuð um 200 milljónir Lítið fékkst upp í 217 milljóna kröfur í bú Kvikmyndaskólans Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Íbúðum til sölu fjölgar verulega frá áramótum Tónabíó opnar á ný Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Vextir hafi sannarlega lækkað en framboðið sé breytt Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Tekur ekki undir fullyrðingar um plat Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað „Kristrún, það er ljótt að plata“ Stjórnendur svartsýnni en þeir hafa verið frá 2020 Bein útsending: Sitja fyrir svörum vegna vaxtahækkunar Ráðinn sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Olís Hækka stýrivexti Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Spáir hækkun stýrivaxta í fyrramálið Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn Sjá meira
Allt nema ristavélin tekið við húsleit Skýrslutaka yfir Magnúsi Guðmundssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg, fer nú fram í Héraðsdómi Reykjavíkur en hann er einn af ákærðu í umfangsmiklu markaðsmisnotkunarmáli sem sérstakur saksóknari hefur höfðað gegn honum og átta öðrum fyrrverandi starfsmönnum og stjórnendum bankans. 5. maí 2015 15:32
Sigurður Einarsson í héraðsdómi: „Traust mitt á réttarkerfinu er ekki lengur til staðar“ Dagurinn byrjaði á því að Sigurður sagði nokkur orð. 5. maí 2015 09:45
Heyrði nafnið Desulo fyrst í yfirheyrslu Augljóst er að það andar köldu á milli Björns Þorvaldssonar, saksóknara, og þeirra sakborninga sem sitja nú í fangelsi vegna Al Thani-málsins. 5. maí 2015 13:41
„Þetta er rétt hjá ákærða, hann er ekki í prófi“ Björn Þorvaldsson, saksóknari, spyr Sigurð Einarsson nú út í ákæruatriði í umfangsmiklu markaðsmisnotkunarmáli sem embætti sérstaks saksóknara hefur höfðað gegn honum og átta öðrum fyrrverandi starfsmönnum og stjórnendum Kaupþings. 5. maí 2015 10:58