Hafa nú spilað fleiri leiki og unnið fleiri titla en heilaga þrenningin hjá Boston Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. apríl 2015 09:00 Tony Parker, Tim Duncan og Manu Ginobili hafa spilað fleiri leiki saman en Robert Parish, Larry Bird og Kevin McHale. vísir/getty/afp
Tríóið ótrúlega hjá NBA-meisturum San Antonio Spurs; Tum Duncan, Manu Ginobili og Tony Parker, spilaði sinn 730. leik saman í nótt þegar liðið valtaði yfir Oklahoma City Thunder. Með því bættu þeir félagarnir met heilagrar þrenningar Boston frá níunda áratug síðustu aldar, en Larry Bird, Kevin McHale og Robert Parish spiluðu 729 leiki saman fyrir Boston Celtics og stóð metið frá 1992. Boston-þrenningin á enn metið yfir flesta sigra saman eða 540. Spurs-tríóið er grátlega nálægt þeim árangri með 536 sigra og þarf að vinna síðustu fjóra leiki tímabilsins til að jafna metið. Líklegt er að Spurs-menn komist ekki nær þar sem Duncan og/eða Ginobili leggja væntanlega skóna á hilluna í sumar. Duncan, Parker og Ginobili hafa þó unnið fleiri titla saman en Boston-þrenningin. Bird, McHale og Parish unnu þrjá saman og Parish einn til viðbótar með Chicago, en Spurs-þrennan hefur unnið fjóra saman og Duncan þann fimmta með David Robinson árið 1999. Eflaust verður deilt um hvort tríóið sé betra þar til fólk nær ekki lengur andanum og má fastlega búast við því að íþróttafréttamenn vestanhafs hefji þá umræðu strax í dag.
NBA Mest lesið „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Íslenski boltinn Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Fleiri fréttir Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Sjá meira
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn