Norðmenn fyrstir í tíu gullverðlaun á ÓL í Sotsjí | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. febrúar 2014 12:02
Norðmenn unnu í dag sín tíundu gullverðlaun á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí í Rússlandi þegar sveit Norðmanna tryggði sér sigur í liðakeppni norrænu tvíkeppninnar. Norðmenn höfðu betur eftir rosalega keppni við Þjóðverja og unnu með aðeins 0,3 sekúndna mun. Þjóðverjar voru 25 sekúndum á undan Norðmönnum eftir skíðastökkið en eins og oft áður þá voru þeir norsku sterkari í skíðagöngunni. Þetta eru fyrstu Ólympíuverðlaun Norðmanna í þessari grein síðan að þeir unnu gull á Vetrarólympíuleikunum í Naganó árið 1998. Sveit Norðmanna skipuðu þeir Magnus Moan, Magnus Krog, Jörgen Graabak og Håvard Klemetsen. Jörgen Graabak var að vinna sín önnur gullverðlaun á leikunum en hann vann einni norræna tvíkeppni með hærri palli. Austurríkismenn unnu bronsið en þeir af fjórum í liðinu, Christoph Bieler og Mario Stecher, unnu gullið í Vancouver fyrir fjórum árum síðan. Norðmenn eru eina þjóðin á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí sem hefur náð að vinna tíu gullverðlaun en Þjóðverjar koma næstir með átta gull. Hefðu Þjóðverjar unnið í dag þá hefðu þeir verið með jafnmörg gull og Norðmenn. Hér fyrir ofan má sjá myndband af endasprettinum í skíðagöngunni.Jörgen Graabak vann sín önnur gullverðlaun.Vísir/GettyÞað munaði ekki miklu á liðunum í lokin.Vísir/Getty
Vetrarólympíuleikar 2014 í Sochi Mest lesið Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Körfubolti Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Enski boltinn Neuer eignaðist niðurlægjandi met Fótbolti Bjartsýnn á að spila aftur eftir þriggja hæða fall Golf Baldvin og Andrea fögnuðu sigri í fyrsta míluhlaupinu Sport Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Fótbolti Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Körfubolti Metfjöldi marka í undanúrslitum: Sjáðu veisluna sem fór fram í París Fótbolti Fékk ekki umbeðna bílalest á við páfann Fótbolti Evrópskt stórlið með augu á Degi Handbolti Fleiri fréttir Tilvistarkreppa LIV-mótaraðarinnar heldur áfram Besta sætið: Skjálfti í Síkinu Wembanyama varði skot yfir spjaldið og sendi Portland í sumarfrí Annasamt á skrifstofum Keflavíkur: Conteh kominn að láni og Daníel Guðni verður áfram Heimsmeistari mætir og ætlar að slá met í Dyrfjallahlaupinu „Það væri óskastaðan“ Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Evrópskt stórlið með augu á Degi Bjartsýnn á að spila aftur eftir þriggja hæða fall Fékk ekki umbeðna bílalest á við páfann Neuer eignaðist niðurlægjandi met „Við hlógum bara að því“ Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Baldvin og Andrea fögnuðu sigri í fyrsta míluhlaupinu Metfjöldi marka í undanúrslitum: Sjáðu veisluna sem fór fram í París Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Dagskráin í dag: Stjarnan með sóp á Króknum og Arsenal slæst við Atlético Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ „Stórkostlegur varnarleikur“ í níu marka veislu Þristur í lokin og Sindri eða Breiðablik í Bónus-deildina Uppgjörið: Haukar - Keflavík 86-70 | Haukar unnu sannfærandi sigur og komust yfir Lygileg níu marka veisla í París Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Arnar Freyr öflugur í evrópskum Íslendingaslag Diljá fljót að leggja upp fyrir mikinn Íslandsvin Uppgjörið: ÍBV - Haukar 36-31 | Eyjakonur tryggðu sér sæti í úrslitum Hver verður fljótastur að hlaupa míluna? Modric brotinn en ætti að ná HM Sjá meira