Guðmundur: Ég er mjög stoltur í dag 14. október 2013 13:42 Guðmundur og Wilbek voru hressir á fundinum í dag.
Guðmundur Þórður Guðmundsson var í dag kynntur sem arftaki Ulrik Wilbek með danska landsliðið í handbolta. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við danska handknattleikssambandið. Wilbek lætur af starfi eftir EM í janúar en mun halda áfram að starfa fyrir danska handknattleikssambandið. Guðmundur er samningsbundinn þýska félaginu Rhein-Neckar Löwen til ársins 2015 en getur sagt upp samningi sínum næsta sumar. Hann tekur því við starfinu þann 1. júlí á næsta ári. "Guðmundur er frábær kostur að mörgu leyti. Meðal annars af því hann þekkir menninguna hér í Danmörku eftir að hafa þjálfað hér. Hann talar líka dönsku," sagði Wilbek er hann kynnti Guðmund til leiks. Hann hélt svo áfram að tala um hina fjölmörgu kosti Guðmundar en þeir eru flestir Íslendingum að góðu kunnir. "God dag alle sammen," var það fyrsta sem Guðmundur sagði á fundinum. "Ég er glaður og stoltur í dag. Það verður mjög ánægjulegt að vinna með þessu sterka liði. Ég mun gefa allt sem ég á í þetta starf." Blaðamenn byrjuðu á því að spyrja Guðmund hvort það væru ekki til nægilega góðir þjálfarar í Danmörku til að þjálfa liðið. "Það eru margir góðir þjálfarar í Danmörku. Þeir leituðu til mín og ég er ánægður með það," sagði Guðmundur á ljómandi fínni dönsku.
Olís-deild karla Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Dramatískasta viðureignin í alþjóðafótboltanum“ Fótbolti Balogun viðurkennir að inngrip Trumps hafi haft truflandi áhrif Fótbolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira