Juventus sá um Evrópumeistarana | Öll úrslit kvöldsins 20. nóvember 2012 19:09 Mirko Vucinic fagnar einu marka Juventus í kvöld. Nordic Photos / Getty Images
Juventus sá til þess að Evrópumeistarar Chelsea eiga nú litla möguleika á því að komast áfram úr riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Shakhtar Donetsk og Bayern München tryggðu sér í kvöld sæti 16-liða úrslitum, sem og Barcelona og Valencia sem gerðu það fyrr í dag. Chelsea yrði þar með fyrsta meistaraliðið sem fellur úr leik í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Liðið er nú í þriðja sæti G-riðils með sjö stig, tveimur stigum á eftir Juventus. Shakhtar Donetsk er í efsta sæti riðilsins með tíu stig og er öruggt áfram í riðlakeppnina. Úkraínumennirnir unnu 5-2 sigur á Nordsjælland á útivelli í kvöld. Chelsea þarf nú að vinna Nordsjælland á heimavelli í lokaumferðinni og treysta á að Juventus tapi á sama tíma fyrir Shakhtar í Úkraínu. Bayern München er komið áfram úr F-riðli eftir 1-1 jafntefli við Valencia á útivelli. Spánverjarnir voru þegar öruggir áfram en það var ljóst eftir sigur Lille á BATE í sama riðli fyrr í dag. Í G-riðli ríkir mikil spenna fyrir lokaumferðina eftir 2-1 sigur Benfica á Celtic. Þessi tvö lið eru nú jöfn að stigum og þarf Celtic að ná betri úrslitum í lokaumferðinni til að komast áfram á kostnað Portúgalanna. Celtic mætir þá Spartak Moskvu á heimavelli en Barcelona tekur á móti Benfica. Manchester United var þegar búið að tryggja efsta sæti H-riðils fyrir leiki kvöldsins. Liðið hafði því ekki að neinu að keppa gegn Galatasaray í Tyrklandi í kvöld og tapaði, 1-0. Cluj vann á sama tíma 3-1 sigur á Braga og er með sjö stig, rétt eins og Galatasaray. Þessi lið berjast því um annað sæti riðilsins í lokaumferðinni. Úrslit kvöldsins:
Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Sjá meira