Zlatan: Seinna vítið eyðilagði leikinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. apríl 2012 22:03 Zlatan ræðir við dómarann í kvöld. Nordic Photos / Getty Images
Zlatan Ibrahimovic, sóknarmaður AC Milan, var ekki ánægður með dómgæsluna í leik sinna manna gegn Barcelona í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Börsungar unnu 3-1 sigur en fengu tvær vítaspyrnur í fyrri hálfleik. Sigurinn tryggði Barcelona sæti í undanúrslitum keppninnar. Lionel Messi skoraði úr þeim báðum en Barcelona fékk seinni vítið undir lok fyrri hálfleiks er staðan var 1-1. Þau úrslit hefðu dugað AC Milan til að komast áfram í undanúrslitin. „Við náðum að jafna leikinn í 1-1 og þá fengum við víti á okkur sem ég skil ekki hvernig var hægt að dæma," sagði Zlatan við fjömliðla eftir leikinn. „Boltinn er hvergi nærri og hann dæmir víti. Það var skrýtið og mér fannst þetta eyðileggja leikinn." „Ég hefði svo átt að fá víti í seinni hálfleik. Fyrst þeir fengu víti finnst mér að við hefðum átt að fá víti líka. Þá hefðum við komist aftur inn í leikinn." Jose Mourinho, stjóri Real Madrid, hefur oft gagnrýnt dómara fyrir að vera hliðhollir Barcelona. Zlatan segist skilja hann vel. „Maður veltir fyrir sér hvort þeir þurfi virkilega á þessu að halda. Þetta er besta lið heims. Ég skil Mourinho vel." „Þetta er besta liðið. En þeir eiga ekki að vera með dómarana á sínu bandi líka. Ef dómgæslan hefði verið hlutlaus hér í kvöld hefðum við átt betri möguleika á að komast áfram." „En þeir voru góðir og getum við ekki skellt allri skuldinni á dómarann. Við vorum að spila við gott lið og þeir gerðu okkur lífið erfitt."
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti Trump um baulið á Vance á setningu ÓL: „Er það satt? Það kemur á óvart“ Sport Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Enski boltinn Albert meiddist og Fiorentina missti frá sér sigurinn Fótbolti Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Íslenski boltinn Martin missir af landsleikjunum Körfubolti Dagskráin: Super Bowl og stórleikur Liverpool og Manchester City Sport „Þriðji leikhlutinn fór með þetta“ Sport Fleiri fréttir Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Orri aftur með draumainnkomu Albert meiddist og Fiorentina missti frá sér sigurinn Kristian Nökkvi á skotskónum í Hollandi Brentford upp að hlið Liverpool eftir endurkomusigur á Newcastle Mikel Arteta segir að níu stiga forysta Arsenal þýði „ekkert“ Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Börsungar gefa ekkert eftir á toppnum Hamrarnir sóttu sigur, Everton sneri leiknum en Villa missti niður forystu Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum United fagnaði fjórða sigrinum í röð Sjáðu mörkin sem Sean Dyche fannst alveg skelfileg Biður Liverpool að slaka á reglunum Fara fögrum orðum um Íslendinginn unga Stóð með sjálfri sér: „Fann að ég myndi ekki ná að blómstra í þessu umhverfi“ Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Risa sigur fyrir Leeds United Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö Hjörtun í vörn Íslands mættust ekki í kvöld Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Þvertaka fyrir að þjálfarinn stökkvi frá borði rétt fyrir HM Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð FH sækir sænskan miðvörð Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Sjá meira