Er þér boðið ódýrasta lyfið í þínu apóteki? Regína Hallgrímsdóttir skrifar 13. desember 2011 06:00 Undanfarin ár hefur reglulega sprottið upp umræða um hátt lyfjaverð á Íslandi og hvað er til ráða til að draga úr lyfjakostnaði ríkisins. Ætlunin er í þessari grein að skýra frá þeirri reynslu sem nýtt samheitalyfjafyrirtæki á íslenskum markaði, LYFIS ehf., hefur upplifað við það að koma samheitalyfjum á markað og reynt að leggja sitt að mörkum við að lækka lyfjaverð í landinu, neytendum og ríkinu til góða. LyfjaskráningarOft hefur verið rætt um há skráningargjöld á lyfjum á Íslandi og hefur fyrirtækið ekki farið varhluta af þeim kostnaði. Þegar starfsemi fyrirtækisins hófst og sótt var um fyrstu skráningar lyfja árið 2008 var grunngjald landsskráningar 115.000 kr. á lyf. Fyrirtækið var þá búið að gera samning um kaup á fjölda lyfja til skráninga og enn fleiri í vinnslu og rekstraráætlanir fyrirtækisins unnar út frá því gjaldi. Árið 2009/10 var svo gjaldskrá Lyfjastofnunar hækkuð úr 115.000 kr. fyrir landsskráningu lyfs í 1.820.000 kr. fyrir samskonar skráningu, eða tæplega 1.600% hækkun. Var það gert á grundvelli mælinga á þeirri vinnu sem liggur á bak við slíkar skráningar og engin ástæða til að rengja þær forsendur en fyrir fyrirtæki sem er að hefja rekstur hafa slíkar hækkanir þær áhrif að allar forsendur rekstraráætlana bresta og gott betur. Velta verður fyrir sér rekstrarumhverfi lyfjafyrirtækja á Íslandi. Sífellt er verið að auka kröfur til m.a. skráninga lyfja sem kalla á aukinn kostnað fyrirtækjanna og er fullur skilningur fyrir því að slíkt er gert sem neytendavernd. Það að hið opinbera geti leyft sér að hækka gjaldskrár í einu skrefi um tæplega 1.600% án nokkurra takmarkana og algjörlega kippt fótunum undan rekstrargrundvelli fyrirtækja er minni skilningur fyrir. Það eru einhliða ákvarðanir sem fyrirtækin standa berskjölduð fyrir. Er líklegt að slíkt stuðli að auknu framboði lyfja á markaði og þar með lækkun lyfjaverðs? Lyfjaverðskráin og viðmiðunarverðskráinVerðlag lyfja er ekki frjálst heldur er hámarksverð á lyfseðilsskyldum lyfjum ákveðið af Lyfjagreiðslunefnd eftir umsókn þar um. Einnig ákvarðar nefndin hvort sjúkratryggingar taka þátt í greiðslu lyfja. Lyfjagreiðslunefnd gefur út lyfjaverðskrá þar sem fram kemur viðmiðunarverðskrá, greiðsluþátttaka almannatrygginga hvers lyfs, hámarksverð og greiðsluþátttökuverð allra lyfseðilsskyldra lyfja. Viðmiðunarverðskráin var þannig uppbyggð að hún bar saman verð milli sömu pakkningastærða en ekki út frá því hvaða lyf var í raun ódýrast, óháð pakkningastærð. Þegar verið er að kaupa lyf erlendis frá er ekki alltaf hægt að velja þær pakkningastærðir sem eru í boði og þegar markaðurinn er eins lítill og hérlendis verða fyrirtækin oft að taka því sem býðst m.t.t. pakkningastærða. LYFIS er með tvö lyf á markaði sem svona var ástatt um. Lyfin frá fyrirtækinu voru ódýrustu lyfin á markaði en voru ekki afgreidd í apótekunum vegna pakkningastærðarinnar og Sjúkratryggingar (SÍ) greiddu í dýrari lyfjunum eins og hin ódýru væru ekki til, þ.e. ríkið var að borga meira fyrir lyfin en þurfti. Strax í apríl síðastliðnum var ljóst að uppsetning lyfjaverðskrárinnar var ekki að vinna með lyfjum fyrirtækisins þó svo þau væru með lægsta verðið á markaði. Í framhaldi af samskiptum við Lyfjagreiðslunefnd hefur verið gerð breyting á uppsetningu Lyfjaverðskrárinnar á þann hátt að nú eru fleiri (ekki allar) pakkningastærðir bornar saman m.t.t. hvað gefur lægsta verðið. Sú breyting tók gildi nú 1. nóvember, þ.e. átta mánuðum eftir að gerð var athugasemd við kerfið. Á þessum átta mánuðum er búið að afgreiða og SÍ borga í mun dýrari lyfjum en hefði þurft ef viðmiðunarverðskráin hefði virkað eins og nú strax í upphafi. Lyfjagreiðslunefnd fær þó lof fyrir að hafa farið í þá vinnu að láta breyta uppsetningu Lyfjaverðskrárinnar og fyrir að sýna áhuga á að vilja breyta kerfinu og leggja eitthvað á sig til þess. Sjúkratryggingar (SÍ)Greiðsla sjúkratrygginga fyrir hverja lyfjaávísun skal skv. lögum miðast við hagkvæmustu pakkningu lyfs samkvæmt lyfjaverðskrá. Strax í apríl var einnig ljóst að það var ekki reyndin vegna uppsetningar Lyfjaverðskrárinnar og hefði kallað á aukna vinnu hjá stofnuninni að fylgja því eftir. Síðan í apríl er SÍ búið að greiða í pakkningum sem ekki eru þær hagkvæmustu samkvæmt lyfjaverðskrá, upphæðir sem nema milljónum króna aukalega. Því miður er það upplifun fyrirtækisins að mikið áhugaleysi var hjá SÍ með að leysa þessi mál þar og meiri áhugi á að vinna með apótekunum með afgreiðslu dýrari pakkninga en að fylgja eftir hlutverki sínu og gera allt sem hægt var til að hagkvæmustu pakkningar lyfja samkvæmt Lyfjaverðskrá væru afgreiddar. Afgreiðsla apótekannaApótekum er skylt skv. lögum að bjóða sjúklingum þau lyf sem eru ódýrust hverju sinni, innan 5% marka. Er það reynsla fyrirtækisins að mörg apótek fylgjast vel með verðbreytingum og kaupa strax ódýrustu lyfin til að eiga handa sínum viðskiptavinum. En þó svo fyrirtækið sé búið að vera með ódýrustu lyfin á markaði í marga mánuði er lítil sem engin sala til ákveðinna apóteka. Einnig hefur fyrirtækið reynslu af því að viðskiptavinur var afgreiddur með dýrara lyf en stóð á lyfseðlinum (LYFIS lyf) og þegar viðkomandi spurði hvort lyfið á lyfseðlinum væri ekki ódýrara en lyfið sem hann var afgreiddur með var honum boðinn afsláttur sem munaði verðmuni á gjaldi einstaklingsins á lyfjunum en ekki var boðist til að útvega viðkomandi lyf. Áhugavert er að velta fyrir sér hvað veldur því að sum apótek eru ekki með ódýrustu lyfin í boði fyrir viðskiptavini og bjóða þau ekki þó svo þeim sé það skylt. Er einhver formgalli í kerfinu sem vinnur gegn hugmyndafræðinni og/eða eru einhverjir faldir samningar til staðar sem hafa áhrif á virkni kerfisins? Tekið skal fram að frá árinu 2008 hefur verið óheimilt að selja lyfseðilsskyld lyf á mismunandi verði til apóteka, þ.e. óheimilt er að gefa afslátt af lyfseðilsskyldum lyfjum til apóteka. Hvað með þig neytandi góður – er þér boðið ódýrasta lyfið í þínu apóteki?Frá því LYFIS markaðssetti sín fyrstu lyf í júlí 2010 hefur aukin samkeppni þeirra lyfja leitt til lækkunar á markaði um 20-80%. LYFIS hefur unnið markvisst að því að lækka verð lyfja á Íslandi, lyf fyrirtækisins eru oftast með lægsta verðið á markaði en fær samt ekki sölu í hlutfalli við það. Velta þarf fyrir sér hvað veldur og hver er þá hvatinn í kerfinu fyrir ný fyrirtæki. Að öllu framansögðu er það mat nýs samheitalyfjafyrirtækis á markaði að það sem mest hefur unnið gegn fyrirtækinu er hið opinbera sjálft. Því væri kannski ekki úr vegi að yfirvöld tækju sér smá tíma í að taka til í eigin ranni og fá þau kerfi sem fyrir eru til að vinna að auknu framboði ódýrari lyfja á markaði áður en farið er að leita skýringa út fyrir kerfið. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðanir Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun