Sýndi fram á hið ómögulega 6. október 2011 11:00 Ísraelskur vísindamaður hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði þetta árið. fréttablaðið/AP
Ísraelski vísindamaðurinn David Schechtman fær Nóbelsverðlaunin í efnafræði fyrir að hafa bylt hugmyndum efnafræðinga um föst efni. Það var árið 1982, þegar Schechtman starfaði að rannsóknum í Bandaríkjunum, sem hann uppgötvaði nýja efnagerð, svonefnda hálfkristalla, sem vísindamenn höfðu áður talið að gætu ekki verið til. Hann var þá að rannsaka blöndu af áli og mangani í rafeindasmásjá og tók eftir því að frumeindir röðuðust í munstur sem áttu ekki að vera möguleg samkvæmt kenningum efnavísindanna. Kristallar eru þeirrar gerðar að þeir raðast í munstur sem endurtaka sig reglulega, en þessi munstur voru svipuð kristöllum að því undanskildu að þau endurtóku sig ekki. Hann ályktaði sem svo að þarna hlytu vísindin að hafa rangt fyrir sér. Það tók hins vegar langan tíma fyrir hann að sannfæra aðra vísindamenn, sem svöruðu honum fyrst með háðsglósum og hættu að taka mark á honum. Smám saman viku þó háðsglósurnar fyrir almennri viðurkenningu, sem nú hefur náð hámarki í Nóbelsverðlaununum. „Það sem ég hef lært á þessu er að góður vísindamaður er auðmjúkur hlustandi sem aldrei er hundrað prósent viss um það sem stendur í fræðibókunum,“ sagði Schechtman, sem nú er orðinn sjötugur og býr í Ísrael.- gb
Nóbelsverðlaun Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira