Lengd fingra segir til um áhættuna 2. desember 2010 00:45 Handþvottur Hlutfallsleg lengd fingra er sögð ráðast af magni hormóna í móðurkviði.Fréttablaðið/GVA
Lengd fingra karla getur gefið vísbendingu um hversu hætt þeim er við að fá krabbamein í blöðruhálskirtil. Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá því að þetta megi lesa úr nýrri rannsókn sem birt var í læknaritinu British Journal of Cancer Study. Rannsóknin leiddi í ljós að karlar sem eru þannig vaxnir að vísifingur þeirra er lengri en baugfingurinn séu mun ólíklegri til að fá krabbamein í blöðruhálskirtil. Niðurstaða rannsóknarinnar var fengin með því að bera saman hendur fimmtán hundruð sjúklinga með krabbamein í blöðruhálskirtli og þrjú þúsund heilbrigðra karla. Fram kemur í umfjöllun BBC að lengd fingra sé fastsett fyrir fæðingu og talið að hún tengist magni hormóna í móðurkviði. Minna magn testósteróns fyrir fæðingu gerir það að verkum að vísifingur verður lengri og getur um leið orðið til þess að líkaminn myndar síður krabbamein í blöðruhálskirtli síðar á ævinni, segja aðstandendur rannsóknarinnar við Warwick-háskóla og Stofnun krabbameinsrannsókna í Bretlandi. Prófessor Ros Eeles, einn höfunda rannsóknarinnar, sagði niðurstöðuna kalla á frekari rannsóknir, en yrðu þær staðfestar þá myndi fingramæling geta orðið einföld mæling á krabbameinshættu.- óká
Fréttir Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira