Atli og Jóhannes að fá nýja meðlimi í bræðraklúbbinn á morgun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. apríl 2010 19:00 Diego Milito átti stórleik í fyrri leiknum. Mynd/AFP
Argentínsku bræðurnir Diego og Gabriel Milito verða í eldlínunni á morgun þegar lið þeirra, Internazionale og Barcelona, mætast í seinni leik sínum í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Þeir hafa mæst áður inn á vellinum en þetta yrði í fyrsta sinn sem þeir léku gegn hvorum öðrum í Evrópuleik. Diego átti stórleik í fyrri leiknum þegar hann skoraði eitt mark og lagði upp hin tvö í 3-1 sigri Inter en Gabriel Milito sat þá á bekknum hjá Barcelona. Gabriel kemur væntanlega inn í miðvarðarstöðuna í leiknum á morgun þar sem að Carles Puyol tekur út leikbann. Spili þeir leikinn á morgun verða þeir aðeins fjórðu bræðurnir sem mætast í Evrópukeppni á vegum UEFA en þeir fyrstu til að gera það voru Íslendingarnir Atli og Jóhannes Eðvaldsson þegar Valur og Celtic mættust á Laugardalsvellinum 16. september 1975. Jóhannes Eðvaldsson var fyrirliði Celtic í leiknum en liðið vann Val 2-0. Jóhannes fékk möguleika á að skora á 70. mínútu en lét þá Sigurð Dagsson, markvörð Vals verja frá sér endurtekna vítaspyrnu en hann hafði skotið yfir úr þeirri fyrri. Celtic vann seinni leikinn 7-0 og skoraði Jóhannes þá fyrsta mark leiksins á 7. mínútu Síðan þá hafa tveir bræður bæst í hópinn. Ronald og Erwin Koeman mættust í leik PSV og Mechelen í leik Evrópumeistara meistaraliði og Evrópumeistara bikarhafa árið 1988 og fyrr í vetur mættust norsku bræðurnir John Arne og Bjørn Helge Riise í leik Roma og Fulham í Evrópudeildinni.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Úr Bestu heim í Hauka Íslenski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Handbolti Fleiri fréttir Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Hætt við að spila í Ástralíu en óvíst hvar leikurinn verður Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist „Svona lítur frábær ákvörðun út“ Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Sjá meira