Snæfelingar áfram á góðu skriði - unnu Hauka létt á Ásvöllum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. nóvember 2010 20:44 Sean Burton.
Snæfellingar eru áfram á toppi Iceland Express deildar karla eftir sextán stiga sigur á Haukum á Ásvöllumn í kvöld, 105-89. Snæfellingar tóku frumkvæðið strax í fyrsta leikhlutanum og litu aldrei til baka eftir það. Þetta var fimmti sigurleikur liðsins í röð og hafa Íslandsmeistararnir nú unnið 7 af fyrstu 8 leikjum sínum á tímabilinu. Sean Burton átti stórleik hjá Snæfelli en hann hitti úr 8 af 14 þriggja stiga skotum sínum og skoraði alls 30 stig auk þess að gefa 6 stoðsendingar. Ryan Amaroso var með 25 stig og 16 fráköst, Pálmi Freyr Sigurgeirsson skoraði 21 stig og Jón Ólafur Jónsson var með 17 stig og 10 fráköst. Semaj Inge skoraði 19 stig fyrir Hauka, Gerald Robinson var með 18 stig og 11 fráköst og þá var Sævar Ingi Haraldsson nálægt þrennunni með 15 stig, 7 fráköst og 7 stoðsendingar. Snæfell var komið í 30-20 eftir fyrsta leikhluta og var með sextán stiga forskot í hálfleik, 61-45. Snæfellingar bættu við forskotið í þriðja leikhlutanum og voru 85-64 yfir fyrir lokaleikhlutann og því löngu orðið ljóst hvort liðið myndi vinna leikinn. Haukar-Snæfell 89-105 (45-61) Stig Hauka: Semaj Inge 19 (7 stoðs./5 stolnir), Gerald Robinson 18 (11 frák./5 stoðs.), Sævar Ingi Haraldsson 15 (7 frák./7 stoðs.), Sveinn Ómar Sveinsson 8, Davíð Páll Hermannsson 8, Örn Sigurðarson 7, Haukur Óskarsson 6, Óskar Ingi Magnússon 4, Emil Barja 2/6 stolnir, Matthías Rúnarsson 2.Stig Snæfells: Sean Burton 30 (6 frák./6 stoðs.), Ryan Amaroso 25 (16 frák.), Pálmi Freyr Sigurgeirsson 21, Jón Ólafur Jónsson 17 (10 frák.), Emil Þór Jóhannsson 4, Kristján Andrésson 3, Egill Egilsson 3, Sveinn Arnar Davíðsson 2.
Dominos-deild karla Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Fótbolti Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Fótbolti Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Fótbolti Fleiri fréttir Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Sjá meira