Williams: Við erum besta lið í heimi 26. maí 2009 17:15 LeBron James þarf að fá meiri hjálp frá félögum sínum ef ekki á illa að fara Nordic Photos/Getty Images
Leikmenn Cleveland Cavaliers verða með bakið uppi við vegg í nótt þegar þeir mæta Orlando Magic í fjórða leik liðanna í úrslitaeinvígi Austurdeildarinnar í NBA. Orlando hefur yfir 2-1 í einvíginu og getur því komist í algjöra lykilstöðu með sigri á heimavelli sínum í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 00:30 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Cleveland var með besta árangur allra liða í deildarkeppninni í vetur og vann fyrstu tvö einvígi sín í úrslitakeppninni auðveldlega 4-0. Liðið hefur hinsvegar átt mjög erfitt uppdráttar í einvíginu við Orlando og er í raun aðeins hársbreidd frá því að vera undir 3-0. Aðeins undrakarfa LeBron James fyrir Cleveland um leið og lokaflautið gall í öðrum leiknum kom í veg fyrir það. Mo Williams, leikstjórnandi Cleveland, lætur sem ekkert hafi í skorist þó Cleveland sé komið í erfiða stöðu í einvíginu. "Við erum besta lið í heimi og eigum skilið að fá virðingu," sagði Williams á blaðamannafundi. Orlando er gott lið en við erum besta liðið," sagði Williams. Hann var spurður hvort hann ætlaði þar með að lofa því að Cleveland kláraði einvígið. "Við vinnum. Við erum undir 2-1 en það er ekki einn maður í liði okkar sem hefur ekki trú á því að við förum í úrslitin. Það verður erfitt, en ef við klárum næsta leik, verðum við komnir með heimavallarréttinn aftur og ég sé okkur ekki tapa tveimur af þremur leikjum í framhaldinu," sagði Williams. Ef Williams og Cleveland-menn eiga að standa við stóru orðin, er ljóst að bæði hann og félagar hans þurfa að standa sig betur en þeir hafa gert til þessa. Williams er aðeins með 32% skotnýtingu í einvíginu og LeBron James (41,7 stig að meðaltali í einvíginu) þarf að fá meiri hjálp frá félögum sínum. "Ég veit að þeir geta spilað betur og þeir vita það sjálfir. Ég ætla ekki að setja pressu á þá. Þeir vita hvað þeir þurfa að gera og þá er bara að klára það," sagði LeBron James.
NBA Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Fleiri fréttir Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Sjá meira