Leikmenn Houston komnir með nóg af meiðslasögu McGrady 15. janúar 2009 17:56 Meiðslakálfarnir Tracy McGrady og Yao Ming NordicPhotos/GettyImages
Þær fréttir berast nú úr herbúðum Houston Rockets í NBA deildinni að Yao Ming og aðrir leikmenn í liðinu séu búnir að fá nóg af óslitinni meiðslasögu Tracy McGrady og vilji hann jafnvel burt frá félaginu. Fréttamaðurinn David Aldridge hjá TNT sjónvarpsstöðinni hefur þannig eftir heimildamanni sínum að þeir Yao Ming og Tracy McGrady, aðalstjörnur liðsins, tali ekki saman þessa dagana - og að Ming sé búinn að fá nóg af sjúkrahúsvist félaga síns. Ef þessar fréttir reynast réttar, kemur gagnrýni Yao Ming reyndar úr hörðustu átt, því kínverski risinn hefur verið litlu skárri sjálfur þegar kemur að þrálátum meiðslum. Tracy McGrady er aðeins 29 ára gamall, en hefur verið lengi í deildinni og er það farið að hafa áhrif á skrokkinn á honum. "Guð minn góður, hann er orðinn gamall," sagði ónefndur njósnari í samtali við David Aldridge og vísaði þar í stirðbusalegan leik McGrady, sem á árum áður var einn mesti íþróttamaður NBA deildarinnar. McGrady hefur aðeins einu sinni spilað yfir 70 af 82 leikjum Houston frá árinu 2005 og hefur spilað aðeins 28 af 40 leikjum Houston til þessa í vetur. Yao Ming er litlu skárri og hefur hann ekki spilað meira en 57 leiki á tímabili síðan árið 2005. Það er ekki síst vegna vanheilsu þeirra félaga sem Houston hefur aldrei náð að standa undir væntingum í NBA deildinni þegar kemur fram á vorið, en þeir félagar hafa aldrei komist upp úr fyrstu umferðinni.
NBA Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Fleiri fréttir Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Sjá meira