Atlanta í aðra umferð 3. maí 2009 19:35 Joe Johnson skoraði sex þrista úr átta tilraunum í oddaleiknum í kvöld AP
Atlanta Hawks varð í kvöld síðasta liðið til að tryggja sér sæti í annari umferð úrslitakeppninnar í NBA deildinni með auðveldum sigri á Miami Heat í oddaleik liðanna. Atlanta vann leikinn 91-78 á heimavelli sínum og mætir Cleveland í næstu umferð. Þetta er í fyrsta skipti síðan árið 1999 sem Atlanta kemst í aðra umferð úrslitakeppninnar. Atlanta hafði yfir 20-18 eftir fyrsta leikhluta í leiknum í kvöld en vann svo annan leikhlutann 29-18 og eftir það var sigurinn aldrei í hættu. Joe Johnson skoraði 27 stig fyrir Atlanta og hitti úr 6 af 8 þristum sínum. Josh Smith skoraði 21 stig og hirti 9 fráköst og Ronald Murray bætti við 15 stigum af bekknum. Dwyane Wade var að venju atkvæðamestur hjá Miami og skoraði 31 stig, Michael Beasley setti 17 stig af bekknum og Udonis Haslem var með 14 stig og 13 fráköst. Atlanta fær erfitt verkefni í næstu umferð þar sem liðið mætir LeBron James og félögum í Cleveland. Cleveland var með bestan árangur allra liða í NBA í deildarkeppninni í vetur og vann þrjár af fjórum viðureignum liðanna í deildarkeppninni. Þá sópaði liðið Detroit út í fyrstu umferð úrslitakeppninnar 4-0 og því hefur Cleveland fengið góða hvíld fyrir komandi átök. Svona líta 8-liða úrslitin í úrslitakeppni NBA út: Austurdeild: Cleveland-Atlanta og Boston-Orlando Vesturdeild: LA Lakers-Houston og Denver-Dallas. Fyrsti leikur Denver og Dallas í annari umferð hófst klukkan 19:30 og er í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsrásinni á Digital Ísland.
NBA Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Fleiri fréttir Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Sjá meira