Lakers og Boston jöfnuðu metin Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. maí 2009 09:00 Ron Artest lætur Kobe Bryant heyra það í leiknum í nótt. Nordic Photos / Getty Images
LA Lakers og Boston Celtics náðu bæði að jafna metin í rimmum sínum í undanúrslitum sinna deilda í NBA-körfuboltanum í nótt eftir að hafa tapað fyrsta leiknum nokkuð óvænt. Í undanúrslitum í Vesturdeildinni vann Lakers sigur á Houston, 111-98, á heimavelli sínum í Los Angeles. Næstu tveir leikir fara fram á heimavelli Houston. Kobe Bryant skoraði 40 stig fyrir Lakers og Pau Gasol bætti við 22 stigum og tók fjórtán fráköst. Ron Artest skoraði 25 stig fyrir Houston áður en honum var vikið af velli. Carl Landry skoraði 21 stig og tók tíu fráköst. Lakers byrjaði leikinn af miklum krafti og hafði fjórtán stiga forystu eftir fyrsta leikhluta, 39-25. Houston náði þó að jafna metin og komast yfir í öðrum leikhluta en staðan var jöfn í hálfleik, 57-57. Lakers náði svo undirtökunum snemma í síðari hálfleik og Houston náði aldrei aftur að brúa bilið. Leikurinn var annars nokkuð skrautlegur en auk Artest var Derek Fisher einnig vikið af velli. Þeir Bryant, Artest, Luis Scola, Luke Walton og Lamar Odom fengu svo allir tæknivillu í leiknum. Artest var vikið af velli í fjórða leikhluta eftir að honum og Kobe Bryant lenti saman. Artest hljóp upp að Bryant og ætlaði allt um koll að keyra. Artest vildi meina að Kobe hefði verið að gefa sér olnbogaskot og vildi svara fyrir sig. Hann gekk þó full vasklega fram og var fyrir vikið rekinn í sturtu. Boston vann Orlando, 112-94, þar sem aukamennirnir voru í aðalhlutverki. Rajon Rondo náði þrefaldri tvennu og Eddie House skoraði 31 stig í leiknum. Rondo var með fimmtán stig, átján stoðsendingar og ellefu fráköst en þetta er í þriðja sinn í úrslitakeppninni sem hann nær þrefaldri tvennu. Dwight Howard var með tólf stig og tólf fráköst fyrir Orlando og Rashard Lewis sautján stig.
NBA Mest lesið Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Hulda Clara fagnaði sigrinum með því að hoppa út í vatnið Golf Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Fleiri fréttir Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Sjá meira