Brand gæti snúið aftur með Sixers í nótt 16. janúar 2009 18:13 80 milljón dollara maðurinn Elton Brand gæti snúið aftur úr meiðslum í kvöld, en hann var að skila 16 stigum og 10 fráköstum í leik þegar hann meiddist Nordic Photos / Getty Images
Ekki er loku fyrir það skotið að framherjinn Elton Brand spili í nótt sinn fyrsta leik með Philadelphia 76ers síðan 17. desember þegar liðið tekur á móti San Antonio Spurs í NBA deildinni. Leikur liðanna verður sýndur beint á Stöð 2 Sport á miðnætti og þar munu heimamenn í Philadelphia leitast við að vinna sinn sjötta leik í röð. San Antonio hefur unnið átta af síðustu tíu leikjum sínum og vann síðast dramatískan sigur á LA Lakers þar sem öskubuskuævintýrið Roger Mason tryggði liðinu sigurinn í blálokin. San Antonio hefur náð sér prýðilega á strik eftir að meiðsli hrjáðu þá Tony Parker og Manu Ginobili framan af vetri. Liðið hefur unnið 25 leiki og tapað aðeins 12 og er í þriðja sæti Vesturdeildar. Philadelphia byrjaði illa í vetur og kostaði það Mo Cheeks þjálfara starfið, en útlit er fyrir að liðið sé nú eitthvað að hressast eins og fimm leikja sigurgangan gefur til kynna. Philadelphia hefur unnið 18 leiki og tapað 20 og situr sem stendur í áttunda sæti Austurdeildarinnar, sem er síðasta sætið sem gefur þátttökurétt í úrslitakeppninni. Liðið fékk kraftframherjann sterka Elton Brand til liðs við sig frá LA Clippers í sumar og skrifaði hann undir 80 milljón dollara samning við félagið. Gríðarlegar væntingar voru í kjölfarið bundnar við 76ers í vetur eftir óvæntan sprett liðsins í úrslitakeppninni í fyrra, en byrjunin var þó ekki eins góð og til stóð.
NBA Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Fleiri fréttir Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Sjá meira