Nú klikkaði þristurinn hjá LeBron Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. maí 2009 09:12 LeBron James og Ben Wallace reyna að stöðva Dwight Howard. Nordic Photos / Getty Images
Orlando vann Cleveland, 116-114, í framlengdum leik í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt. Þar með hefur Orlando tekið 3-1 forystu í einvíginu og þarf bara einn sigur til viðbótar til að tryggja sér sæti í úrslitunum. Eini sigur Cleveland í einvíginu til þessa kom í öðrum leik í rimmu liðanna en þá tryggði LeBron James Cleveland sigur með ótrúlegri þriggja stiga flautukörfu. Nú þurfti að framlengja og var Cleveland tveimur stigum undir þegar 3,2 sekúndur voru til leiksloka. LeBron fékk boltann og reyndi við annan flautuþrist en nú klikkaði það. Orlando fagnaði dýrmætum sigri og getur komist í úrslit með sigri í Cleveland annað kvöld. Dwight Howard átti stórleik og skoraði tíu af sextán stigum Orlando í framlengingunni. Alls var hann með sautján stig, fjórtán fráköst og nýtti sjö af níu vítaköstum sínum. Orlando bætti líka félagsmet með því að setja niður sautján þrista í leiknum. Rashard Lewis og Mickael Pietrus voru með sautján stig hvor fyrir liðið. Lewis setti niður gríðarlegan mikilvægan þrist þegar fjórar sekúndur voru eftir af fjórða leikhlutanum og Cleveland yfir, 98-97. En þegar hálf sekúnda var eftir braut Pietrus á LeBron James sem fór á vítalínuna og nýtti bæði skotin sín - þar með þurfti að framlengja. Orlando komst sex stigum yfir þegar rúm mínúta var eftir af framlengingunni. LeBron James náði að minnka muninn í eitt stig með þrist þegar fjórar sekúndur voru eftir en nær komst liðið ekki. James skoraði alls 44 stig í leiknum, tók tólf fráköst og gaf sjö stoðsendingar. Mo Williams var með átján stig og Delonte West sautján.
NBA Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Þýskaland - Curacao | Slá HM-met Íslendinga Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Þór - ÍBV | Landsbyggðarslagur af bestu gerð Fótbolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Fleiri fréttir Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Sjá meira