Iguodala tryggði Philadelphia sigur í Orlando 20. apríl 2009 09:21 Andre Iguodala fagnar sigurkörfu sinni gegn Orlando í gærkvöldi AP
Fjórir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA deildarinnar í gærkvöldi og í nótt. Aðeins einn þessara leikja var í raun spennandi en það var viðureign Orlando og Philadelphia í Flórída. Philadelphia lenti mest 18 stigum undir á útivelli í leiknum en náði að rífa sig upp og vinna leikinn með sigurkörfu Andre Iguodala þegar um tvær sekúndur voru eftir af leiknum. Orlando var með þriðja besta árangurinn í Austurdeildinni í vetur en Philadelphia sjötta besta. Iguodala var besti maður Philadelphia í leiknum og skoraði 20 stig, gaf 8 stoðsendingar og hirti 8 fráköst, Lou Williams skoraði 18 stig og Andre Miller var með 15 stig, 7 fráköst og 7 stoðsendingar. Hjá Orlando var Dwight Howard að venju atkvæðamestur með 31 stig og 16 fráköst og Courtney Lee var með 18 stig. Billups frábær Chauncey Billups var allt í öllu þegar Denver vann stórsigur á New Orleans Hornets 113-84 á heimavelli. Billups hitti úr 8 af 9 þriggja stiga skotum sínum í leiknum, skoraði 36 stig og gaf 8 stoðsendingar fyrir Denver. Leikurinn var jafn framan af en Denver stakk af í síðari hálfleiknum. Chris Paul skoraði 21 stig og gaf 11 stoðsendingar fyrir New Orleans. Þetta var næst stærsti sigur Denver í úrslitakeppni í sögu félagsins, en leikurinn í gær markaði líka fyrsta skiptið í 21 ár sem Denver er með heimavallarrétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Atlanta tók Miami í kennslustund Flestir reikna með því að einvígi Atlanta Hawks og Miami Heat verði eitt það jafnasta í fyrstu umferðinni, en fyrsti leikur liðanna í Atlanta var alls ekki jafn. Atlanta sigraði 90-64 og færði Miami einn versta skell í sögu félagsins í úrslitakeppni. Josh Smith fór fyrir liði Atlanta með 23 stigum, 10 fráköstum og mörgun glæsilegum troðslum yfir lánlaust Miami-liðið. Joe Johnson skoraði 15 stig og Al Horford 14. Dwyane Wade skoraði 19 stig fyrir Miami og Michael Beasley 10, en enginn annar leikmaður Miami skoraði yfir 10 stig í leiknum. Miami skoraði aðeins 7 stig í fjórða leikhlutanum. Þá vann LA Lakers sigur á Utah eins og við greindum frá í gærkvöld.
NBA Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Fleiri fréttir Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Sjá meira