Barkley: Michael Jordan er besti körfuboltamaður allra tíma Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. september 2009 12:30 Michael Jordan og Charles Barkley. Mynd/AFP
Michael Jordan verður í dag tekinn inn í Frægðarhöll bandaríska körfuboltans ásamt þeim John Stockton, David Robinson og þjálfurunum Jerry Sloan og Vivian Stringer. Flestir eru á því að Jordan sé besti körfuboltamaður allra tíma og einn af þeim er Charles Barkley. „Michael Jordan er að mínu mati besti körfuboltamaður allra tíma," segir Charles Barkley. „Við skuldum honum allir pening," segir Barkley á sinn einstaka hátt og útskýrir það síðan frekar: „Það eru þrír leikmenn sem við skuldum mikinn pening. Fyrst voru það Magic (Johnson) og (Larry) Bird sem rifu upp NBA-deildina á sínum tíma og síðan fór Jordan með NBA-deildina upp á annað stig," sagði Barkley og á því við að vinsældir NBA-deildarinnar hafi skilað honum og öðrum NBA-leikmönnum vænum upphæðum í launaumslögum sínum. Jordan vann allt á sínum frábæra ferli og fær nú lokaviðurkenningu sína þegar hann er tekinn inn í Frægðarhöllina eins fljótt og mögulegt er. Leikmenn þurfa að vera hættir í sex ár til þess að koma til greina. Bæði Jordan og Stockton lögðu skónna hilluna árið 2003. Michael Jordan var ótrúlegur keppnismaður sem lagði endalaust mikið á sig til að bæta sig sem leikmaður. Hann vann sex NBA-titla með Chicago Bulls og tvö Ólympíugull með bandaríska landsliðinu auk endalausra einstaklingsafreka. „Jordan er langbestur og það kemst enginn nálægt honum," sagði Steve Kerr, framkvæmdastjóri Phoenix Suns og fyrrum félagi Jordan hjá Chicago Bulls.
NBA Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Þýskaland - Curacao | Slá HM-met Íslendinga Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Fleiri fréttir Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Sjá meira