Guardiola vill að Fletcher spili í úrslitaleiknum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. maí 2009 08:00 Darren Fletcher fær að líta rauða spjaldið í leiknum gegn Arsenal. Nordic Photos / Getty Images
Pep Guardiola vill að Darren Fletcher fái að spila með Manchester United gegn Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu síðar í mánuðinum. Guardiola er stjóri Barcelona. Fletcher fékk að líta rauða spjaldið í síðari undanúrslitaviðureign United gegn Arsenal fyrr í vikunni og þótti það mjög harður dómur. United áfrýjaði spjaldinu en ólíklegt þykir að rauða spjaldið verði dregið til baka. Degi síðar lék Barcelona í sinni undanúrslitaviðureign gegn Chelsea og þar fékk Eric Abidal einnig að líta rauða spjaldið. Dani Alves var með gult spjald á bakinu fyrir leikinn og þar sem hann fékk áminningu í leiknum verður hann einnig í banni í úrslitaleiknum. Barcelona hefur áfrýjað báðum þessum spjöldum til Knattspyrnusambands Evrópu. „Það verða vonbrigði ef rauða spjaldið verður ekki dregið til baka," sagði Guardiola. „Fletcher náði að koma við boltann. Eric Abidal braut heldur ekki af sér þannig að þeir ættu báðir að fá að spila í úrslitaleiknum." „Ég vil að þeir taki allir þátt - Fletcher, Abidal og Dani Alves. Við skulum sjá hvort við getum ekki komist að einhverju samkomulagi við Manchester United." Það þykir þó afskaplega ólíklegt að UEFA samþykki slíkt samkomulag á milli félaganna tveggja.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Íslenski boltinn Snævar setti heimsmet Sport Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Enski boltinn „Er ekki alveg viss um hvar hann hefur lært körfubolta“ Körfubolti Sjáðu Messi skjóta Inter Miami áfram í fyrsta sinn Fótbolti Maddie Sutton í sögubækurnar í fámennum hóp Körfubolti Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Enski boltinn Dagskráin í dag: Stórleikur í enska og NFL á fullt Sport Hvetur Napólí til að sækja óánægðan Mainoo Fótbolti Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Rayo Vallecano - Real Madrid | Geta styrkt stöðuna á toppnum Fanney sænskur meistari í fyrstu tilraun Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Sjáðu Messi skjóta Inter Miami áfram í fyrsta sinn Hvetur Napólí til að sækja óánægðan Mainoo Parma nældi í stig gegn toppliði AC Milan Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Sanngjarn heimasigur Algjör markaþurrð í Seríu A Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Union Berlin stöðvaði ótrúlega sigurgöngu Bayern Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Emelía og stöllur með átta stiga forskot Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Inter missti niður tveggja marka forskot Boro bannar Edwards að stýra liðinu í dag Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool „Allt sem er satt í dag gæti verið lygi eftir þrjár vikur“ Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Fjölmargir borguðu sig inn á langþráða æfingu Þakklátur Klopp fyrir ríginn: „Ég sakna hans“ Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Kristian fiskaði rautt og fékk svo rautt Glódís leiðir Bayern áfram í hárrétta átt Sjá meira