Liverpool jafnaði í viðbótartíma - Chelsea tapaði Elvar Geir Magnússon skrifar 4. nóvember 2008 21:30 Maxi Rodriguez, markaskorari Atletico Madrid, í baráttunni gegn Javier Mascherano.
Seinni umferðin í riðlum A-D í Meistaradeild Evrópu hófst í kvöld. Chelsea gerði ekki góða ferð til Rómar og lenti þremur mörkum undir áður en John Terry minnkaði muninn. Deco fékk síðan að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt. Christian Panucci skoraði fyrsta mark leiksins áður en Mirko Vucinic bætti við tveimur mörkum fyrir Rómverja. Í hinum leik A-riðilsins vann Bordeaux 3-1 útisigur á Cluj. Julio Cruz tryggði Inter jafntefli gegn Famagusta 3-3 með marki á 80. mínútu leiksins. Balotelli og Materazzi skoruðu hin mörk Ítalíumeistarana í leiknum. Panathinaikos tók Werder Bremen í kennslustund í Þýskalandi. Eiður Smári Guðjohnsen var ónotaður varamaður þegar Barcelona náði aðeins að gera jafntefli gegn Basel 1-1. Leo Messi kom Börsungum yfir en gestirnir náðu að jafna. Í hinum leik C-riðils vann Sporting Lissabon 1-0 sigur á Shaktar Donetsk. Atletico Madrid og Liverpool gerðu 1-1 jafntefli í toppleik D-riðils. Maxi Rodriguez skoraði fyrir Atletico Madrid en Liverpool jafnaði úr vítaspyrnu þegar uppgefinn viðbótartími var liðinn. Sá vítaspyrnudómur var einfaldlega kolrangur en sænski dómarinn haggaðist ekki þrátt fyrir hörð mótmæli. Steven Gerrard skoraði af öryggi úr spyrnunni. Hér að neðan má sjá úrslitin og stöðuna í riðlunum. A-riðill:Cluj - Bordeaux 1-2 Roma - Chelsea 3-1 Staðan: 1. Chelsea, 7 stig (+3 í markatölu) 2. Roma, 6 (+2) 3. Bordeaux, 6 (-4) 4. Cluj, 4 (-1) B-riðill: Famagusta - Inter 3-3 Werder Bremen - Panathinaikos 0-3 Staðan: 1. Inter, 8 stig (+3 í markatölu) 2. Famagusta, 5 (+1) 3. Panathinaikos, 4 (-1) 4. Werder Bremen, 3 (-3) C-riðill:Barcelona - Basel 1-1 Sporting - Shaktar Donetsk 1-0 Staðan: 1. Barcelona, 10 stig (+8 í markatölu) 2. Sporting, 9 (+2) 3. Shaktar Donetsk, 3 (-2) 4. Basel, 1 (-8) D-riðill: Liverpool - Atletico Madrid 1-1 Marseille - PSV Eindhoven 3-0 Staðan: 1. Atletico Madrid, 8 stig (+4 í markatölu) 2. Liverpool, 8 (+3) 3. Marseille, 3 (-1) 4. PSV Eindhoven, 3 (-6)
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Tólf Íslandsmet féllu á Íslandsmótinu í sundi Sport Markaregn í enska boltanum í dag Fótbolti Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Fótbolti Inter aftur á toppinn eftir sigur á Lazio Fótbolti Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Fótbolti Norris með aðra höndina á titlinum Formúla 1 Öruggur sigur City Enski boltinn Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Íslenski boltinn Kristall Máni á skotskónum í sigurleik Fótbolti Maddie Sutton í sögubækurnar í fámennum hóp Körfubolti Fleiri fréttir Markaregn í enska boltanum í dag Inter aftur á toppinn eftir sigur á Lazio Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Kristall Máni á skotskónum í sigurleik Enginn varið fleiri víti en Mamardashvili Daníel Tristan skoraði sigurmark Malmö Albert skoraði en Fiorentina enn án sigurs og á botninum Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Fyrsta jafntefli Real Madrid Fanney sænskur meistari í fyrstu tilraun Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Sjáðu Messi skjóta Inter Miami áfram í fyrsta sinn Hvetur Napólí til að sækja óánægðan Mainoo Parma nældi í stig gegn toppliði AC Milan Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Sanngjarn heimasigur Algjör markaþurrð í Seríu A Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Union Berlin stöðvaði ótrúlega sigurgöngu Bayern Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Emelía og stöllur með átta stiga forskot Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Sjá meira