Dow Jones í nýju meti 7. maí 2007 15:57 Frá hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum.
Dow Jones hlutabréfavísitalan sló enn eitt metið á fjármálamörkuðum í Bandaríkjunum í dag þegar hún hækkaði um 22,75 punkta, 0,17 prósent og fór í 13.287,37 stig. Helsta ástæðan fyrir hækkuninni er yfirtökutilboð álrisans Alcoa í Alcan, annan umsvifamesta álframleiðanda í heimi. Dow Jones vísitalan hefur hækkað jafnt og þétt síðustu vikurnar og slegið hvert metið á fætur öðru vegna góðra afkomu fyrirtækja í Bandaríkjunum. Síðast sló vísitalan met við lokun markaða vestanhafs á föstudag. Tilboð Alcoa, sem er fjandsamlegt og þýðir að það er lagt fyrir hluthafa Alcan í stað stjórnar fyrirtækisins, hljóðar upp á 33 milljarða bandaríkjadali, jafnvirði tæpra 2.100 milljarða íslenskra króna. Kaupverðið nemur 73,25 dölum á hlut og fá hluthafar Alcan 58,6 dali á hlut greidda í peningum en afganginn í hlutabréfum í Alcoa. Þetta jafngildir því að Alcoa greiðir hluthöfum Alcan rétt tæpa 27 milljarða dali, rúmlega 1.716 milljarða íslenskra króna, í beinhörðum peningum. Stjórn Alcan hefur hvatt hluthafa fyrirtækisins til að halda ró sinni og bíða eftir því að stjórnin hafi tekið tilboðið til umfjöllunar. Gert er ráð fyrir því að tilboðið verði lagt fram á morgun.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Olís sektað um kvartmilljón vegna fullyrðinga um kolefnisjöfnun Neytendur Vill að Alþingi skipi rannsóknarnefnd vegna forsætisráðherra Viðskipti innlent Launin reyndust tæp hálf milljón á mánuði Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent 60 kílómetrar af Glamour komið í verslanir Viðskipti innlent Nýtt sportvörumerki hristir upp í markaðnum Samstarf Áhersla á sjálfbærni í nýrri leigu og fagverslun BYKO Samstarf Erfitt að vera mikið einn í vinnu og án mikilla samskipta Atvinnulíf Í vinnutengdri ástarsorg Atvinnulíf Vara við eggjum í kleinuhringjum Neytendur Fleiri fréttir Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Hagnaðist um 2,2 billjónir króna Gengi Novo Nordisk steypist niður Samkomulagið það besta mögulega í erfiðum aðstæðum Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Hampiðjan kaupir ástralskan kaðlaframleiðanda Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Sjá meira