Hitzfeld skammar leikmenn sína 22. apríl 2007 13:30 Ottmar Hitzfeld var þungur á brún þegar hann horfði á sína menn tapa fyrir Stuttgart í gær. MYND/Getty
Ottmar Hitzfeld og Oliver Kahn, þjálfari og fyrirliði Bayern Munchen, eru allt annað en sáttir með frammistöðu leikmanna liðsins í leiknum gegn Stuttgart í gær. Leikurinn tapaðist 2-0 og eru möguleikar Bayern á titlinum orðnir stjarnfræðilegir. Þá er alls ekki víst að Bayern nái að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Bayern er í fjórða sæti eftir tapið í gær en þrjú efstu sætin gefa sæti í Meistaradeildinni. Liðið hefði komist í þægilega stöðu með sigri á Stuttgart í gær en þrátt fyrir mikilvægi leiksins voru leikmenn Bayern úti á þekju lengst af og áttu ekki skilið að fá neitt úr leiknum. Eftir leikinn sagði þjálfarinn Hitzfeld að leikmenn þyrftu að taka sjálfa sig í rækilega naflaskoðun. “Frammistaða okkar var einfaldlega skelfileg,” sagði Hitzfeld, en Bayern er nú 5 stigum á eftir Stuttgart, sem er í þriðja sætinu. “Það var ömurlegt að sjá metnaðarleysi leikmanna. Það var engin barátta og engin vilji í hjörtum okkar. Þetta eru gríðarleg vonbrigði fyrir mig,” sagði þýski þjálfarinn. Fyrirliðinn og markvörðurinn Oliver Kahn tók undir orð þjálfara síns. “Við erum ekki vanir því að vera að berjast um fjórða sæti. Við eigum að vera í baráttunni um efsta sætið. Okkur skortir einbeitingu og leikmenn óttast of mikið að valda vonbrigðum og eyðileggja fyrir sjálfum sér. Það þarf að fara langt aftur í tímann til að finna eins vonda frammistöðu og við buðum upp á í fyrri hálfleiknum hér í Stuttgart,” sagði Kahn.
Þýski boltinn Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira