Dallas færist nær deildarmeistaratitlinum 8. apríl 2007 12:47 Vince Carter og Jason Kidd voru frábærir í nótt. MYND/Getty
Dallas þarf nú aðeins einn sigur til viðbótar til að tryggja sér sigur í deildarkeppni NBA en eftir að hafa sigrað Portland í nótt, 86-74. Dallas hefur nú unnið 63 leiki en tapað 13 það sem af er leiktíð. Vince Carter hjá New Jersey og Eddy Curry hjá New York voru menn næturinnar í NBA-deildinni. Jason Terry átti mjög góðan leik fyrir Dallas og skoraði 29 stig, auk þess sem hann var mjög drjúgur fyrir sitt lið á lokakaflanum. Dirk Nowitzki náði sér ekki á strik og skoraði aðeins 11 stig en það kom ekki að sök að þessu sinni. Vince Carter átti magnaðan leik fyrir New Jersey þegar liðið sigraði Washington, 120-114, eftir framlengingu. Leikmenn Washington réðu ekkert við Carter og þegar uppi var staðið hafði hann skorað 46 stig, hirt 16 fráköst og gefið 10 stoðsendingar. Félagi hans Jason Kidd náði einnig þrefaldri tvennu, skoraði 10 stig, tók 16 fráköst og gaf 18 stoðsendingar. Þetta er í fyrsta sinn sem liðsfélagar ná þrefaldri tvennu í sama leiknum síðan Micheal Jordan og Scottie Pippen náðu þeim árangri með Chicago Bulls árið 1989. Eddy Curry var maðurinn á bakvið 118-113 sigur New York á Milwaukee. Curry lék einn sinn besta leik á ferlinum og skoraði 43 stig auk þess að hirða 13 fráköst. Hjá Milwaukee var Ruben Patterson með 27 stig. Tim Duncan skoraði 28 stig og hirti 15 fráköst þegar San Antonio sigraði Golden State 112-99. Jason Richardsson skoraði 23 stig fyrir Golden State. Úrslit í öðrum leikjum næturinnar: Minnesota - NO/Oklahoma 94-96 Orlando – Memphis 116-89 Indiana – Boston 105-98 Utah - Seattle 103-106 LA Clippers – Denver 93-96
NBA Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Brasilía - Marokkó | Fyrsti stórleikurinn Fótbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira